Hoppa yfir valmynd
7. júlí 2021 Utanríkisráðuneytið

Hjálparstarf kirkjunnar hlýtur styrk til mannúðaraðstoðar í Sýrlandi

Ljósmynd: Hjálparstarf kirkjunnar. - mynd

Á dögunum veitti utanríkisráðuneytið Hjálparstarfi kirkjunnar styrk að upphæð tíu milljónir króna til mannúðaraðstoðar í Sýrlandi. Þar hafa sem kunnugt er átök staðið yfir linnulítið í rúman áratug og þörfin fyrir mannúðaraðstoð er gífurleg. Að mati Sameinuðu þjóðanna er talið að um ellefu milljónir íbúa þurfi á aðstoð að halda.

Áhersla stuðningsins sem Hjálparstarf kirkjunnar veitir er að tryggja vernd og sálfélagslegan stuðning barna og fullorðinna, draga úr áhrifum vegna COVID-19 heimsfaraldurs og efla öryggi fólks. Þess er að vænta að verkefnið leiði til þess að lina þjáningar fólks vegna átakanna, velferð og viðnámsþróttur barna og fullorðinna aukist og að fjölskyldur hafi meiri tekjur og bætta afkomu.

Styrkurinn rennur til verkefna Lúterska heimssambandsins í Sýrlandi en Hjálparstarf kirkjunnar hefur árlanga reynslu af því að miðla fjármunum til neyðaraðstoðar í gegnum Lúterska heimssambandið og byggir samstarfið á faglegum grundvelli.

Styrkurinn er hluti af samstarfi utanríkisráðuneytisins við íslensk félagasamtök í þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Opið er fyrir umsóknir til mannúðaraðstoðar allt árið svo lengi sem fjárheimildir leyfa. Allar nánari upplýsingar má finna hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
2. Ekkert hungur
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum