Hoppa yfir valmynd
22. desember 2021 Utanríkisráðuneytið

UNICEF sendir hjálpargögn á hamfarasvæði Filippseyja

Starfsmenn og samstarfsaðilar UNICEF með hjálpargögn fyrir Filippseyjar. Ljósmynd: UNICEF - mynd

UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna áætlar að um 845 þúsund börn á hamfarasvæðum fellibyljsins Rai á Filippseyjum þarfnist neyðaraðstoðar. UNICEF hefur brugðist við og sent nauðsynleg grunnhjálpargögn á vettvang meðan áframhaldandi mat er lagt á ástandið og þörfina.

Að sögn UNICEF er nauðsynlegt að tryggja næringu, vatn, lyf, föt, tímabundið skjól og viðbragðspakka við hamförum til heilbrigðisstofnana, svo fátt eitt sé nefnt. 

„Hugur okkar er hjá börnunum og fjölskyldum þeirra sem lentu í fellibylnum. Fjölmörg börn munu verja hátíðunum í ár svöng, köld, án þaks yfir höfuðið og í áfalli. UNICEF vinnur að því að koma til móts við brýnustu þarfir þessa fólks ásamt stjórnvöldum og samstarfsaðilum á svæðinu,“ segir Oyunsaikhan Dendevonorov, fulltrúi UNICEF á Filippseyjum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
3. Heilsa og vellíðan
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum