Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2020 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 479/2019 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 479/2019

Þriðjudaginn 28. janúar 2020

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 19. nóvember 2019, kærði A til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. október 2019, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 19. nóvember 2019. Með bréfi, dags. 20. nóvember 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Með bréfi, dags. 6. desember 2019, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ekki hafi verið staðið rétt að ákvörðun í máli kæranda og því hafi hin kærða ákvörðun verið afturkölluð. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. desember 2019, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. október 2019, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í kjölfar kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála fór Vinnumálastofnun yfir mál kæranda og taldi að ranglega hefði verið staðið að hinni kærðu ákvörðun. Í greinargerð til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði því fellt hina kærðu ákvörðun úr gildi. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en engin svör bárust frá honum.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum