Hoppa yfir valmynd
25. ágúst 2023 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 79/2023 Úrskurður 25. ágúst 2023

Mál nr. 79/2023                    Eiginnafn:     Trausta (kvk.)

Hinn 25. ágúst 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 79/2023 en erindið barst nefndinni 11. ágúst.   

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Trausta (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Traustu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Trausta (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum