Hoppa yfir valmynd
1. júní 2021 Innviðaráðuneytið

Vegvísir.is – tímamót í miðlun upplýsinga um samgöngur, fjarskipti og byggðamál

 Vegvísir.is er nýr gagnvirkur upplýsingavefur ráðuneytisins um samgöngur, fjarskipti og byggðamál - mynd

Vegvísir.is er nýr gagnvirkur upplýsingavefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis. Vefnum er ætlað að vera leiðarvísir almennings að lykilupplýsingum um samgöngur, fjarskipti og byggðamál. Vegvísir markar tímamót með nýstárlegri framsetningu á opinberum gögnum, en þar verður hægt að fylgjast með fjármögnun, framvindu og árangri í yfir 500 verkefnum og stöðu 60 árangursmælikvarða. Á vefnum eru upplýsingar um markmið, aðgerðir, fjármagn, framvindu og árangur í þremur lykiláætlunum ráðuneytisins – samgönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun. 

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, opnaði vefinn formlega á kynningarfundi um Vegvísi í dag: „Það er afar þýðingarmikið að efla stafræna þjónustu og veita enn betri aðgang að opinberum gögnum. Það er því sérstakt gleðiefni að geta nú gefið fólki kost á að fylgjast með fjölmörgum verkefnum og framkvæmdum hins opinbera á sviði samgangna, fjarskipta og byggðamála á nýjum og glæsilegum upplýsingavef,“ sagði ráðherra.

Á Vegvísi er hægt að skoða markmið, einstök verkefni, raunstöðu þeirra og þá mælikvarða sem notaðir eru til að meta árangurinn. Á einfaldan hátt er hægt að sjá að hverju er verið að vinna í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og fagstofnunum sem undir það heyra.

„Þetta er stórmerkilegt nýsköpunar- og umbótaverkefni sem greiðir aðgang almennings að upplýsingum og hvetur til samtals um málefni og áætlanir ráðuneytisins,“ segir Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Kortasjá er sögu ríkari

Hægt er að skoða aðgerðir og framkvæmdir ýmist á korti (kortasjá) eða í lista (aðgerðayfirlit). Hægt er að kalla fram ýmsar upplýsingar eftir áætlunum og leitarskilyrðum. Til að fá fram ítarlegri upplýsingar um hverja aðgerð er smellt á viðeigandi tákn á kortinu. Þá er hægt að skoða allar upplýsingar og framvindu verkefna eftir landshlutum.

Þrjár af áætlunum ráðuneytisins; samgönguáætlun, byggðaáætlun og fjarskiptaáætlun eru settar fram á vefnum með mun aðgengilegri hætti en áður. Þær verða áfram aðgengilegar í þingskjölum eins og tíðkast hefur um langt skeið. Stefnt er að því að upplýsingar um verkefni og mælikvarða úr sveitarstjórnaráætlun bætist við fyrr en síðar.

Vegvísir sýnir hvað er á áætlun og hvaða árangri hefur verið náð. Vegvísir sýnir stöðu verkefna og hvar á landinu aðgerðir og framkvæmdir eiga sér stað með nákvæmu hniti. Einnig má sjá hvernig fjármagn skiptist, í hvaða aðgerðir og til hvaða svæða. Skoða má landið allt, einstaka landshluta eða afmarkað svæði.

Hægt er að skoða allar áætlanir í einu, einstaka áætlun eða tiltekinn hluta af áætlun. Sem dæmi er hægt að skoða allar aðgerðir byggðaáætlunar á landsvísu, eingöngu aðgerðir byggðaáætlunar á Vestfjörðum eða tiltekna tegund aðgerða byggðaáætlunar á Vestfjörðum t.d. styrki til verslana eða fjarheilbrigðisþjónustu.

Vegvísir er unnin í samstarfi samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og stofnana ráðuneytisins sem eru: Byggðastofnun, Póst- og fjarskiptastofnun, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands. Eins veitir Isavia upplýsingar um stöðu verkefna á flugvöllum.

  • Við kynningu á Vegvísi. F.v. Hrafnkell Hjörleifsson ritstjóri Vegvísis, Ingilín Kristmannsdóttir, skrifstofustjóri stefnumótunar og fjárlaga, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum