Hoppa yfir valmynd
23. desember 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Tilraunaverkefni um samgöngumöguleika fatlaðs fólks

Strætó á ferðinni
Strætó á ferðinni

Velferðarráðuneytið hefur í samvinnu við Reykjavíkurborg sett á laggirnar tilraunaverkefni sem á að styðja við möguleika fatlaðs fólks til að nýta sér almenningssamgöngur. Markmiðið er að virkja fatlað fólk enn frekar til þátttöku í daglegu lífi án aðgreiningar.

Framkvæmd verkefnisins verður þannig háttað að ráðnir verða starfsmenn til að vinna með fötluðu fólki sem nú notar ferðaþjónustu fatlaðra og skoða hvort það geti í einhverjum mæli nýtt sér almenningssamgöngur. Ljóst þykir að í einhverjum tilvikum geti almenningssamgöngur nýst fötluðu fólki til reglulegra ferða, til dæmis til og frá vinnu, fái það til þess nauðsynlegan stuðning.

Reykjavíkurborg mun vinna samantekt að verkefninu loknu um þann árangur sem náðst hefur. Verkefnið er unnið á grundvelli framkvæmdaáætlunar í málefnum fatlaðs fólks og hefur Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, ákveðið að veita til þess 2 milljónum króna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum