Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 260/2022 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. júlí 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 260/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22040026

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 16. apríl 2022 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. apríl 2022, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands. Meðfylgjandi kæru voru athugasemdir kæranda ásamt fylgigögnum.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 14. mars 2022, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands í 13 daga hjá sendiráði Íslands í Nýju Delí á Indlandi. Hinn 23. mars 2022 fór kærandi í símaviðtal hjá fulltrúa utanríkisráðuneytisins vegna umsóknar sinnar. Með hinni kærðu ákvörðun var umsókn kæranda um vegabréfsáritun synjað þar sem upplýsingar sem veittar hefðu verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hefðu ekki verið áreiðanlegar og að það væri rökstuddur grunur um áreiðanleika framlagðrar ferðaáætlunar. Frekari athugasemdir kæranda bárust 28. apríl 2022. Hinn 9. maí 2022 óskaði kæruefnd útlendingamála eftir eftirfarandi rökstuðningi frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar um að synja kæranda um útgáfu vegabréfsáritunar. Eftirfarandi rökstuðningur, sem barst kærunefnd hinn 25. maí 2022, verður rakinn í niðurstöðukafla úrskurðarins. Með tölvubréfi, dags. 7. júní 2022, var kæranda boðið að leggja fram umboð og kæru fyrir hönd eiginkonu sinnar en ekkert svar barst. Af þeirri ástæðu tekur úrskurður þessi einungis til umsóknar kæranda.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í athugasemdum með kæru kemur fram að kærandi hafi skipulagt ferð til Íslands ásamt eiginkonu sinni til að fagna eins árs brúðkaupsafmæli þeirra. Hann hafi lagt fram ítarleg skjöl varðandi flugbókanir og hótelbókanir og óski þess að kærunefnd endurskoði hina kærðu ákvörðun.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um kæru þessa gilda lög um útlendinga nr. 80/2016 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er skv. fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. útlendingalaga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu og undirritun Brussel-samningsins hinn 18. maí 1999 tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins, en með aðild Íslands að Schengen-samstarfinu fylgir skuldbinding til þess að fylgja sameiginlegri stefnu að því er lýtur ferðum fólks, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og Ráðsins (EB) nr. 810/2009 um vegabréfsáritanir.

Við veitingu vegabréfsáritana ber íslenskum stjórnvöldum sem einu af Schengen-ríkjunum ekki aðeins að ganga úr skugga um að öllum formskilyrðum sé fullnægt heldur einnig að meta hvort hætta sé talin á að viðkomandi útlendingur muni dvelja lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt og/eða snúi ekki aftur til heimalands. Þessi skylda íslenskra stjórnvalda er lögfest í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þannig er reynt af fremsta megni að stemma stigu við því að gildandi reglur um dvalarleyfi séu sniðgengnar með því að útlendingur sæki um vegabréfsáritun í staðinn. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að rétt sé að lögfesta ákveðin sjónarmið sem beri að miða við í mati á umsókn um vegabréfsáritun. Séu þessi sjónarmið í samræmi við markmið útlendingalaganna og hafi mótast í framkvæmd Schengen-ríkjanna. Enn fremur segir í athugasemdum með frumvarpinu að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalarsinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er í samræmi við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um vegabréfsáritanir (2009/819/EB), en nánari tilvísun er að finna í ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er notað staðlað form þar sem hægt er að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsókn sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reiti 10 og 11 vegna synjunar á umsókn kæranda, þ.e. að upplýsingar sem veittar hefðu verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hefðu ekki verið áreiðanlegar og að það væri rökstuddur grunur um áreiðanleika framlagðrar ferðaáætlunar. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var kæranda leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins óskaði kærandi ekki eftir slíkum rökstuðningi hjá Útlendingastofnun.

Í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram að Útlendingastofnun taki ákvörðun um umsókn um útgáfu vegabréfsáritunar og þá sé heimilt að fela utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um slíkar umsóknir. Enn fremur sé heimilt að fela utanríkisþjónustu annars ríkis sem taki þátt í Schengen-samstarfinu að verða við umsókn um vegabréfsáritun. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi að lögum um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram miðað sé við að umsóknir um vegabréfsáritun verði lagðar fram í skrifstofum sendiráða og ræðisskrifstofa erlendis og þær sendar Útlendingastofnun til ákvörðunar. Viðkomandi sendiráð eða ræðisskrifstofa muni síðan gefa áritunina út að fenginni heimild Útlendingastofnunar. Þá kemur fram að gert sé ráð fyrir að ráðherra geti heimilað utanríkisþjónustunni að taka ákvörðun um umsóknir um vegabréfsáritun. Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram í Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar, Erlendi, vegna máls kæranda þar sem málsmeðferð umsóknar hans hjá sendiráðinu er rakin. Kemur þar m.a. fram að kærandi ætli sér að ferðast með eiginkonu sinni og öðru pari til Íslands. Kærandi sé í starfi en hafi aldrei ferðast utan Asíu. Í símaviðtali hafi kærandi ekki getað svarað spurningum um framlagða ferðaáætlun. Ferðaskrifstofan sem kærandi hafi notið aðstoðar við vegna umsóknar sinnar sé ekki með löglega skráningu sem ferðaskrifstofa og sé ekki með heimasíðu sem þyki draga úr trúverðugleika hennar.

Hinn 9. maí 2021 óskaði kæruefnd útlendingamála eftir eftirfarandi rökstuðningi frá Útlendingastofnun vegna ákvörðunar stofnunarinnar, dags. 12. apríl 2022, um að synja umsókn kæranda um vegabréfsáritun inn á Schengen-svæðið. Eftirfarandi rökstuðningur barst kærunefnd hinn 25. maí 2021. Kemur þar fram að Útlendingastofnun telji ástæðu til að draga í efa áreiðanleika þeirra gagna sem kærandi hafi lagt fram frá fyrrnefndri ferðaskrifstofu. Ferðaskrifstofan sé einungis með síðu á Facebook og engar upplýsingar sé þar að finna um ferðir á vegum þeirra til Íslands. Í símaviðtali vegna umsóknar um vegabréfsáritun hafi kærandi ekki getað veitt upplýsingar um fyrirhugaða dvöl sína hér á landi, þ. á m. hversu marga daga hann og eiginkona hans ætluðu að dvelja hér á landi og hvaða staði þau hygðust heimsækja. Þá hafi verið ósamræmi í svörum kæranda og eiginkonu hans vegna ferðarinnar. Vegna framangreinds hafi það verið mat Útlendingastofnunar að þær upplýsingar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa réttmæti þeirra upplýsinga sem veittar hafi verið um ferðaáætlun kæranda hér á landi. Hafi umsókn kæranda um vegabréfsáritun því verið synjað. Eftirfarandi rökstuðningur var sendur á kæranda til andmæla 23. júní 2022, engin svör bárust frá kæranda vegna þessa.

Að mati kærunefndar eru framlögð gögn og þær málsástæður sem kærandi byggir á ekki þess eðlis að ástæða sé til að hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hans um vegabréfsáritun. Við það mat hefur kærunefnd m.a. litið til þess að kærandi hafi ekki getað greint frá ferðaáætlun sinni auk þess sem verulegur vafi er í málinu um áreiðanleika þeirrar feðraskrifstofu sem kærandi notaðist við vegna umsóknarinnar. Auk þess ber að líta til þess að kærandi hefur aldrei ferðast um Schengen-svæðið og að ósamræmi hafi verið  í svörum hans og eiginkonu hans um fyrirhugaða ferð. Þá hafa þær athugasemdir sem kærandi lagði fram hjá kærunefnd ekki bætt úr trúverðugleika hans varðandi tilgang ferðalags.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 32. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum