Hoppa yfir valmynd
10. apríl 2013 Utanríkisráðuneytið

Ísland gerist aðili að netöryggissetri Atlantshafsbandalagsins

Össur og Urmas fyrir framan Litlu kaffistofuna
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra tilkynnti Urmas Paet utanríkisráðherra Eistlands, á fundi þeirra á Litlu kaffistofunni í dag, að Íslendingar hyggðust gerast aðilar að netöryggissetri Atlantshafsbandalagsins sem starfrækt er í Eistlandi. Setrið er öndvegissetur sem safnar nýjustu þekkingu og aðferðum í baráttunni við tölvuglæpi og netárásir.

"Þetta er í anda í þeirrar samstöðu sem myndast hefur  á Alþingi um að efla varnir gegn netárásum. Við teljum rétt að vera í sem nánustu og bestu samstarfi við þá sem hafa mesta þekkingu á þessu sviði, til að styrkja öryggi þjóðarinnar," segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. "Utanríkisráðherra Eistlands hvatti okkur til þess á fyrri fundi að ganga til liðs við setrið, við könnuðum málið og þetta er niðurstaðan," segir ráðherra.

"Með aðild að öndvegissetrinu sækjum við okkur úrvals sérfræðiþekkingu, fáum greiningar og aðrar upplýsingar. Við getum sent okkar sérfræðinga til starfa við setrið sem verður okkur afar gagnlegt þegar fram líða stundir," segir ráðherra.
 
Öndvegissetrið í Eistlandi var sett á fót árið 2008 og eiga nú ellefu ríki Atlantshafsbandalagsins aðild að setrinu. Aðild að því samræmist stefnu og áherslum Íslands, en hér á landi skipar netöryggi aukinn sess í umræðu og viðbúnaði, auk þess sem netöryggi færist sífellt ofar á forgangslista í öryggisstefnum ríkja.

Á fundinum ræddu ráðherrarnir einnig samstarf ríkjanna á ýmsum sviðum. Náin vinátta og aukið samstarf Íslands og Eistlands birtist meðal annars í samvinnu um rekstur sendiráðs í Peking. Í umræðu sinni um alþjóðamál, lýstu báðir áhyggjum af stöðu mála í Norður Kóreu.

Að fundinum í Litlu kaffistofunni loknum, kynnti ráðherra starfsbróður sínum möguleika jarðhitans og þeir kynntu sér einnig starfsemi Garðyrkjuskólans í Hveragerði og heimsóttu gróðurhús.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum