Hoppa yfir valmynd
12. maí 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Hátt í 5.000 manns sóttu námsstefnu í Laugardalshöll

Skólinn opnar dyr
Skólinn opnar dyr

Mikil aðsókn var að námsstefnunni Skólinn opnar dyr í Laugardalshöll í dag þar sem haldin var kynning á námstækifærum í framhalds- og háskólum fyrir ungt fólk og atvinnuleitendur. Auk fulltrúa skólanna voru einnig á staðnum ráðgjafar frá menntamálaráðuneyti, Vinnumálastofnun, símenntunarmiðstöðvum og Lánasjóði íslenskra námsmanna. Samsvarandi kynningar eru fyrirhugaðar á Suðurnesjum og Akureyri.

Námsmessan var haldin í tengslum við átakið Nám er vinnandi vegur sem byggt er á tillögum samráðshóps sem forsætisráðherra skipaði með fulltrúum ráðuneyta, þingflokka, aðila vinnumarkaðarins og hreyfinga námsmanna.

Framlög til menntamála verða samtals aukin um sjö milljarða króna á næstu þremur árum og hefur fjármögnun átaksins verið tryggð með samráði ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við nýgerða kjarasamninga. Framhaldsskólinn verður efldur, atvinnuleitendum verður gefið tækifæri til að mennta sig, sérstakur þróunarsjóður stofnaður til að efla starfstengt nám og samstarf skóla og fyrirtækja um starfstengt nám verður aukið. Lög um LÍN og framfærslukerfi námsmanna verða endurskoðuð, skil framhaldsskóla og fullorðinsfræðslu verða gerð sveigjanlegri, námsráðgjöf efld og vinnustaðanámssjóður styrktur.

Með átakinu verður mun auðveldara en áður að komast að í framhaldsskóla eftir námshlé. Haustið 2011 munu skólarnir taka inn alla umsækjendur undir 25 ára aldri sem uppfylla skilyrði, ásamt eldri umsækjendum sem hafa lokið raunfærnimati vorið 2011.

Einnig opnast nýir möguleikar fyrir atvinnuleitendur. Þeim sem uppfylla tiltekin skilyrði gefst nú kostur á að stunda nám á haustönn án þess að greiða skólagjöld. Markmiðið er að veita 1.000 umsækjendum aðgang að framhaldsskólum, frumgreinadeildum, háskólum og framhaldsfræðslu – með óskertum atvinnuleysisbótum í eina önn.

Sérstakur stýrihópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins stýrir átakinu og gefa formenn hans frekari upplýsingar, þau Runólfur Ágústsson (695-9999) og Berglind Rós Magnúsdóttir (846-7514).

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum