Hoppa yfir valmynd
18. nóvember 2021 Innviðaráðuneytið

Fjölmargar minningarathafnir um land allt um fórnarlömb umferðarslysa

Fjölmargir viðbragðsaðilar sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verða. - myndMynd/EMM

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 21. nóvember. Í ár verður kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Táknrænar minningarstundir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni. Dagskrá viðburða er á vefnum minningardagur.is.

Minningarathöfn verður haldin við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð kl. 14:00. Forseti Íslands og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verða viðstaddir og flytja ávörp. Við þetta tækifæri munu forseti og ráðherra, ásamt fulltrúum viðbragðsaðila, kveikja á kertum til minningar um fórnarlömb umferðarslysa. Boðuð verður einnar mínútu þögn sem landsmenn eru hvattir til að taka þátt í. Vegna faraldursins verður streymt frá athöfninni á vef minningardagsins og á Facebook og er fólk hvatt til að njóta þess og sýna viðeigandi hluttekningu. 

Sautján minningarviðburðir eru skipulagðir um land allt í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörg og verða flestir þeirra í beinu vefstreymi. Fólk er hvatt til að taka þátt með því að fylgjast með í gegnum streymi og kveikja á kertum til minningar um fólk sem látist hefur eða slasast alvarlega í umferðinni.

Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum sem eru með lifandi, beina útsendingu, á minningardaginn kl. 14:00.

Alþjóðlegur minningardagur

Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni. Þá er rík hefð fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf. 

Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. 

Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1592 látist í umferðinni á Íslandi (til og með 16. nóvember 2021). Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum. 

Það sem af er þessu ári hafa sjö einstaklingar látið lífið í umferðinni hér á landi. Allt árið 2020 létust sjö einstaklingar í umferðinni en árið 2019 sex manns. Alls liðu 258 dagar án nokkurs banaslyss á árinu og er það lengsti tími frá því að skráningar hófust 1966. Að meðaltali hafa undanfarin tíu ár 12 manns látist í umferðinni á hverju ári. Tíu ár þar á undan þ.e. frá 2001 til og með 2010 létust að meðaltali 20 manns á ári í umferðinni hér á landi. 

Segja má að allt samfélagið deili með sér alvarlegum afleiðingum umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að koma í veg fyrir slysin og megi þessi dagur efla vitund okkar fyrir því og ábyrgð.

Auk ráðuneytisins standa eftirtaldir að framkvæmd minningardagsins hér á landi: Samgöngustofa, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Lögreglan, Sjálfsbjörg og Vegagerðin. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum