Hoppa yfir valmynd
19. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 560/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 19. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 560/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU21090045

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 15. september 2021 kærði […], kt. […], ríkisborgari Tælands (hér eftir nefnd kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2021, um að dvalarleyfi sem henni var veitt með gildistíma frá 10. september 2021 til 9. september 2022 teljist vera fyrsta leyfi samkvæmt 51. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 í stað endurnýjunar á dvalarleyfi, sbr. 57. gr.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði breytt á þann veg að dvalarleyfið teljist vera endurnýjun, sbr. 57. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.            Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk útgefið dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara, sbr. 70. gr. laga um útlendinga, hinn 18. júlí 2019 með gildistíma til 3. júlí 2020. Var dvalarleyfið endurnýjað með gildistíma til 3. júlí 2021. Kærandi sótti um endurnýjun á leyfinu hinn 23. júlí 2021. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2021, var kæranda veitt dvalarleyfi samkvæmt fyrri grundvelli með gildistíma frá 10. september 2021 til 9. september 2022 og tók stofnunin fram að umsóknin teldist vera fyrsta leyfi, sbr. 51. gr. laga um útlendinga. Kærandi kærði þann þátt ákvörðunarinnar til kærunefndar útlendingamála hinn 15. september 2021. Greinargerð kæranda barst kærunefnd hinn 23. september 2021 ásamt fylgigögnum.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í hinni kærðu ákvörðun kom fram að það væri afstaða Útlendingastofnunar m.t.t. fyrirliggjandi gagna að ekki væru fyrir hendi ríkar sanngirnisástæður í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga um útlendinga. Af því leiddi að umsóknin teldist vera fyrsta leyfi samkvæmt 51. gr. laganna. Yrði framangreint til þess að rof hefði myndast á samfelldri dvöl kæranda í skilningi laga um útlendinga og af því leiddi að samfelld dvöl kæranda yrði talin frá útgáfudegi þessa leyfis, þ.e. 10. september 2021. Vísaði Útlendingastofnun til þess að þetta yrði til þess að útlendingur missti uppsöfnuð réttindi til ótímabundins dvalarleyfis, sbr. 58. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi m.a. til þess að hún hafi talið endurnýjunardagsetningu leyfisins vera í október 2021 í samræmi við útgáfudag fyrra leyfis og að mistök hennar hafi orsakast af misskilningi en ekki ásetningi eða gleymsku. Þá hafi ákveðnir atburðir orðið til þess að sótt hafi verið um endurnýjun leyfis of seint.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Líkt og greinir í II. kafla úrskurðarins var kærandi með útgefið samfellt dvalarleyfi samkvæmt 70. gr. laga um útlendinga á tímabilinu 18. júlí 2019 til 3. júlí 2021. Kærandi sótti um endurnýjun á því leyfi hinn 23. júlí 2021 og fékk það útgefið sem fyrsta dvalarleyfi samkvæmt 51. gr. laga um útlendinga með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 10. september 2021. Ákvörðun Útlendingastofnunar hefur þær lögfylgjur í för með sér að rof er komið í samfellda dvöl kæranda sem m.a. hefur áhrif við mat á samfelldri dvöl skv. 58. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 2. mgr. 57. gr. laga um útlendinga skal útlendingur sem óskar eftir endurnýjun dvalarleyfis sækja um hana eigi síðar en fjórum vikum áður en dvalarleyfi fellur úr gildi. Í 3. mgr. ákvæðisins segir að sé ekki sótt um endurnýjun dvalarleyfis innan gildistíma fyrra dvalarleyfis skuli réttur til dvalar falla niður og fara skuli með umsókn skv. 51. gr. Þá segir í 4. mgr. 57. gr. laga um útlendinga að Útlendingastofnun geti heimilað útlendingi að dveljast hér á landi samkvæmt fyrra leyfi þar til ákvörðun hefur verið tekin á grundvelli umsóknar um endurnýjun leyfis sem borist hefur eftir þann frest sem um getur í 2. mgr. ef ríkar sanngirnisástæður mæla með því.

Í athugasemdum við ákvæði 4. mgr. 57. gr. í frumvarpi því er varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a.:

„Í 4. mgr. er veitt undantekning frá 3. mgr. samkvæmt ákvörðun Útlendingastofnunar ef afsakanlegt er að umsókn hafi borist eftir tilskilinn frest eða vegna ríkra sanngirnisástæðna. Sem dæmi um afsakanleg tilvik má nefna ef útlendingur hefur verið alvarlega veikur eða hann hefur af óviðráðanlegum ástæðum þurft að fara fyrirvaralaust til heimalands án þess að hafa haft tök á að leggja inn umsókn um endurnýjun. Sem dæmi um tilvik, sem ekki falla undir greinina, er ef útlendingur ber því við að hann hafi ekki vitað að leyfi hans væri að renna út eða að umboðsmaður hans hafi gert mistök. Ef útlendingur sækir of seint um endurnýjun dvalarleyfis, þ.e. eftir að leyfi hans rennur út, er hann í þeirri stöðu að þurfa að sækja um nýtt leyfi en ekki endurnýjun. Þetta verður til þess að útlendingur missir uppsöfnuð réttindi til ótímabundins dvalarleyfis, eftir atvikum. Vegna þessa verður í anda markmiðs um mannúð að líta sérstaklega til þessa við ákvörðun samkvæmt þessari málsgrein sem og hvort líklegt sé að dvalarleyfi fáist endurnýjað. Við mat á því hvort umsækjanda sé heimilt að dveljast hér á landi þar til ákvörðun hefur verið tekin á grundvelli umsóknar hans skal hafa þýðingu hvort líklegt sé að dvalarleyfið verði veitt og hvort dvalarleyfi það er útlendingur óskar endurnýjunar á sé þess eðlis að það myndi grundvöll til ótímabundins dvalarleyfis. Hins vegar yrði að líta á það leyfi sem yrði eftir atvikum veitt sem nýtt leyfi.“

Eins og að framan greinir lagði kærandi fram umsókn um endurnýjun dvalarleyfis hinn 23. júlí 2021 eða 20 dögum eftir að gildistíma fyrra dvalarleyfis rann út. Er því ljóst að sú dvalarleyfisumsókn sem hin kærða ákvörðun snýr að var ekki lögð fram innan þeirra tímaskilyrða sem 2. mgr. 57. gr. áskilur.

Kemur þá næst til skoðunar hvort ríkar sanngirnisástæður séu fyrir hendi í máli kæranda, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga um útlendinga, svo líta beri á dvalarleyfisumsókn kæranda, dags. 23. júlí 2021, sem endurnýjun á fyrra dvalarleyfi.

Í fyrirliggjandi gögnum málsins er m.a. ljósrit af fyrra dvalarleyfisskírteini kæranda. Á því er bæði að finna útgáfudagsetningu þess, 21. október 2020, sem og að leyfið skuli endurnýjast 3. júlí 2021. Að mati kærunefndar eru skýringar kæranda fyrir nefndinni ekki þess eðlis að fyrir hendi séu ríkar sanngirnisástæður í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                             Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum