Hoppa yfir valmynd
6. nóvember 2012 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-september 2012

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2012 liggur nú fyrir.

Handbært fé frá rekstri batnaði á milli ára og var neikvætt um 42,3 ma.kr. samanborið við 67,4 ma.kr. á sama tímabili 2011.
Tekjur reyndust 39,8 ma.kr. hærri en í fyrra á meðan að gjöldin jukust um 10,6 ma.kr. milli ára.
Þetta er betri niðurstaða en gert var ráð fyrir í áætlunum þar sem gert var ráð fyrir að handbært fé frá rekstri yrði neikvætt um 66 ma.kr. Hluti af því fráviki skýrist með því að raundreifing gjalda og tekna hefur verið önnur en gert var ráð fyrir. Inni í heimildum er búið að taka tillit til fjárheimildastöðu frá fyrra ári.

Greiðsluafkoma ríkissjóðs janúar-september 2012

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum