Hoppa yfir valmynd
3. september 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 291/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 3. september 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 291/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU20080003

Beiðni [...] um endurupptöku

 

I. Málsatvik

Með úrskurði kærunefndar útlendingamála í máli nr. KNU1910080, dags. 12. mars 2020, staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar frá 14. október 2019 um að taka ekki umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir nefnd kærandi), um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar og vísa henni frá landinu.

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 16. ágúst 2019. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 16. mars 2020. Þann 23. mars 2020 lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar sem var synjað af kærunefnd þann 17. apríl 2020. Þann 21. apríl 2020 barst kærunefnd beiðni kæranda um endurupptöku málsins sem var synjað af kærunefnd þann 7. maí 2020. Þann 4. ágúst 2020 óskaði kærandi eftir endurupptöku málsins að nýju og lagði hún fram greinargerð í málinu þann 10. ágúst 2020. Þá barst viðbótargreinargerð þann 16. ágúst 2020.

Beiðni kæranda um endurupptöku máls hennar byggir á 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda, dags. 10. ágúst sl., er þess m.a. krafist að umsókn kæranda verði endurupptekin á grundvelli breyttra aðstæðna með vísan til þess að kærandi hafi gengið í hjúskap hér á landi og hafi því tengsl við landið líkt og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 kveði á um.

Í viðbótargreinargerð kæranda, dags. 16. ágúst sl., er rakið að kærandi hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi þann 16. ágúst 2019. Beiðni kæranda um endurupptöku byggir einnig á því að meira en 12 mánuðir séu nú liðnir frá því að hún sótti um alþjóðlega vernd hér á landi og með vísan til 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli því taka umsókn hennar til efnismeðferðar á Íslandi.

Allt þetta leiði til þess að stjórnvöldum sé skylt að endurupptaka mál hennar, m.v.t. 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga en um sé að ræða íþyngjandi ákvörðun sem byggist á atvikum sem breyst hafi verulega frá því að ákvörðun var tekin.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á því að mál hans verði tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Í 1. mgr. 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hefur samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Stjórnvöldum er þó heimilt, á grundvelli a-, b- og c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna, að taka umsókn ekki til efnismeðferðar við þær aðstæður sem tilgreindar eru í umræddum stafliðum.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af orðalagi 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur í úrskurðum kærunefndar verið lagt til grundvallar að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis eða þegar kærandi fer úr landi sjálfviljugur eftir að ákvörðun í máli hans hefur verið tekin.

Kærunefnd telur að túlka beri 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á þann hátt að þó að 12 mánaða fresturinn sé liðinn verði umsókn ekki tekin til efnismeðferðar af þeim sökum ef tafir á málsmeðferð eða flutningi verði raktar til athafna eða athafnaleysis umsækjanda sem hann ber ábyrgð á, nema þær tafir hafi verið óverulegar og ljóst er að hægt hefði verið að flytja kæranda áður en 12 mánaða fresturinn var liðinn.

Líkt og áður hefur komið fram sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi þann 16. ágúst 2019 og hefur hún ekki enn yfirgefið landið. Því eru liðnir rúmlega 12 mánuðir frá því að umsókn kæranda barst fyrst íslenskum stjórnvöldum.

Þann 17. ágúst 2020 óskaði kærunefnd útlendingamála eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun og stoðdeild ríkislögreglustjóra um hvort tafir hefðu orðið á meðferð umsóknar kæranda og ef svo væri, hvort þær væru á ábyrgð kæranda, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Svar frá Útlendingastofnun barst þann 18. ágúst 2020 og var það mat stofnunarinnar að kærandi hafi ekki tafið mál sitt meðan það hafi verið til meðferðar hjá stofnuninni. Þann 17. ágúst 2020 barst kærunefnd svar frá stoðdeild ríkislögreglustjóra þar sem fram kom að kærandi hafi ekki tafið mál sitt.

Af upplýsingum sem kærunefnd bárust frá stoðdeild ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnun, varðandi fyrirspurn um tafir á málsmeðferð og flutningi kæranda, má ráða að þær tafir sem hafi orðið á málinu hafi ekki verið af völdum kæranda. Að auki hefur kærunefnd farið yfir málsmeðferð í máli kæranda og er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að kærandi verði talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknar sinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls framangreinds og samfelldrar dvalar kæranda hér á landi síðan hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 16. ágúst 2019, er fallist á að atvik hafi breyst verulega í máli kæranda á þann hátt að hún eigi rétt á endurupptöku á máli sínu, sbr. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga. Það er jafnframt niðurstaða kærunefndar að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er, að mati kærunefndar, ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

 

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hennar. Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The appellant‘s request for re-examination of her case is granted.The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the applicant‘s application for international protection in Iceland.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                                                           Þorbjörg Inga Jónsdóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum