Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2022 Utanríkisráðuneytið

UN Women á Íslandi stýrir hliðarviðburði hjá Sameinuðu þjóðunum

Hvernig má ná jöfnuði og valdefla konur og stúlkur í tengslum við loftslagsbreytingar og viðbragðsáætlunum við þeim? Þessi spurning verður umræðuefni árslegs fundar kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW) sem haldinn verður í mars. Forsætisráðuneytið hefur gert samning við UN Women á Íslandi um skipulag og umsjón með hliðarviðburði íslenskra stjórnvalda á fundinum.

Sökum COVID-19 verða allir hliðarviðburðir rafrænir í ár. Íslenski viðburðinn verður í samræmi við meginþema þingsins og honum verður streymt rafrænt.

Kvennanefndafundir Sameinuðu þjóðanna hafa farið fram árlega frá árinu 1946. Fundurinn í ár er sá 66. í röðinni og fer fram dagana 14. til 25. mars. Á fundinum verður farið yfir árangur af samþykktum niðurstöðum liðinna funda. Í ár verður farið yfir niðurstöður 61. fundar kvennanefndar SÞ sem fram fór árið 2017. „Fundirnir gegna mikilvægu hlutverki í að stuðla að frekari réttindum kvenna og stúlkna um allan heim með ályktunum sínum og stefnumótunum,“ segir í frétt frá UN Women.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum