Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2009 Dómsmálaráðuneytið

Ráðherra heimsótti ríkislögreglustjóra og lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra heimsótti embætti ríkislögreglustjóra og embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu í gær, mánudaginn 23. febrúar, ásamt starfsmönnum úr ráðuneytinu.
Heimsókn til ríkislögreglustjóra
Heimsókn til embættis ríkislögreglustjóra.

Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra heimsótti embætti ríkislögreglustjóra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu í gær, mánudaginn 23. febrúar, ásamt starfsmönnum úr ráðuneytinu. Ráðherra kynnti sér áherslur embættanna og þau mál sem efst eru á baugi.

Embætti ríkislögreglustjóra

Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri og yfirstjórn embættisins fundaði með ráðherra um löggæslumál og framtíðarsýn. Auk þess kynnti ráðherra sér starfsemi ríkislögreglustjóraembættisins og ræddi við starfsfólk.

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu

Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, tók á móti Rögnu ásamt starfsmönnum. Farið var yfir starfsemi lögreglunnar og m.a. kynnt aðgerðaáætlun til að stemma stigu við innbrotum á svæðinu. Ráðherra heimsótti nokkrar deildir embættisins og ræddi við starfsmenn, m.a. í umferðardeild, rannsóknardeild og almennri deild.


Heimsókn til lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu

 

 

 

 

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu heimsótt. Ragna Árnadóttir og Stefán Eiríksson fyrir miðju ásamt starfsfólki lögreglustjóraembættisins og ráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum