Hoppa yfir valmynd
26. apríl 2002 Utanríkisráðuneytið

Þing Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðannna

Nr. 036

FRÉTTATILKYNNING
frá utanríkisráðuneytinu

Fimmtugasta og áttunda þingi Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (Commission of Human Rights), sem staðið hefur yfir undanfarnar sex vikur, lýkur í Genf í dag. Í Mannréttindaráðinu eiga sæti 53 ríki, sem kosin eru af Efnahags- og félagsmálaráði Sameinuðu þjóðanna (ECOSOC) til þriggja ára í senn. Að þessu sinni á Svíþjóð sæti í ráðinu af hálfu Norðurlanda.

Efling mannréttinda er órjúfanlegur hluti af starfi Sameinuðu þjóðanna í þágu friðar og öryggis. Á þingum Mannréttindaráðsins er fjallað um stöðu og þróun mannréttinda, ástand mannréttinda í einstökum löndum og réttindi ákveðinna þjóðfélagshópa. Á þinginu nú eins og hin síðari ár byggðist málflutningur allflestra ríkisstjórna, alþjóðasamtaka svo og félagasamtaka á þingfundum ráðsins á því að mannréttindi séu algild og á ábyrgð alþjóðasamfélagsins alls. Hryðjuverkaárásirnar á New York og Washington hinn 11. september sl. og ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs hafði veruleg áhrif á starf þingsins.

Á þinginu voru fluttar tvær norrænar ræður, þ.e. um málefni frumbyggja og málefni fatlaðra.

Ísland var meðflytjandi að 46 ályktunartillögum sem fjölluðu m.a. um afnám dauðarefsingar, aftökur, baráttu gegn pyntingum, afnám alls ofbeldis gegn konum, réttindi minnihlutahópa, afnám hvers kyns fordóma gagnvart trúarbrögðum, réttindi barnsins, mannréttindi fatlaðra, mannréttindi og innri starfshætti, alþjóðlega mannréttindasamninga, málefni frumbyggja, fátækt, menntun, verjendur mannréttinda og mannúðarlög. Ísland var meðflutningsaðili að ályktunartillögu um gerð valfrjálsrar bókunar við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum (CAT). Jafnframt var Ísland meðflutningsaðili að sérstökum ályktunartillögum um stöðu mannréttinda í Írak, Íran, Kambódíu, Kongó lýðveldinu, Kúbu, Myanmar, Simbabve, Sierra Leone, Súdan, Tsjetsjeníu og á Balkanskaga. Ályktunartillögur um stöðu mannréttinda í Íran og Tsjetsjeníu voru hins vegar felldar með eins atkvæðis mun. Ekki voru greidd atkvæði um ályktunartillögu Evrópusambandsins um stöðu mannréttinda í Simbabve, þar sem flutt var frávísunartillaga sem var samþykkt. Ísland var ennfremur meðflutningsaðili að tillögu Spánar, fyrir hönd Evrópusambandsins, um ólöglegt landnám Ísraelsmanna á hernumdu svæðunum og að tillögu Sádi Arabíu um rétt Palestínumanna til sjálfsákvörðunar og stofnunar sjálfstæðs ríkis. Þingið samþykkti samhljóða ályktanir formanns ráðsins um stöðu mannréttinda í Afganistan, Austur-Tímor, Haíti, Kólombíu og Vestur-Sahara.

Nánari upplýsingar um mannréttindaþingið má finna á eftirfarandi veffangi: http://www.ohchr.org/english/ Meðfylgjandi er listi yfir þær ályktunartillögur sem Ísland gerðist meðflutningsaðili að.



Utanríkisráðuneytið
Reykjavík, 26. apríl 2002



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum