Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2021 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Elfa Svanhildur skipuð í embætti forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu

Elfa Svanhildur Hermannsdóttir og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.  - mynd

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur skipað Elfu Svanhildi Hermannsdóttur í embætti forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Elfa er skipuð til fimm ára og tekur til starfa 1. mars næstkomandi.

Elfa er með B.ed. í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og PGDip í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands. Þá lauk hún PGDip í sérkennslufræðum blindra og sjónskertra nemenda frá University of Birmingham. Elfa kláraði MPM meistaranám í verkefnastjórnun árið 2011 frá Háskóla Íslands þar sem lokaverkefnið fjallaði um sameiningu eða samvinnu stofnana fyrir fólk með skerðingar.

Elfa hefur víðtæka þekkingu og reynslu af þeim málaflokkum sem heyra undir stofnunina. Á árunum 2007-2009 var hún kennsluráðgjafi hjá Blindrafélaginu þar sem hún hafði meðal annars umsjón með utanumhaldi um öll sjónskert börn á Íslandi og tók þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Frá 2010 til 2016 var Elfa þjónustustjóri hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu en það starf fól meðal  annars í sér skipulagningu og umsjón á þjónustu á landsvísu ásamt utanumhaldi um námskeið og fræðslu á vegum miðstöðvarinnar.

Þá var Elfa forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða árin 2016-2018 þar sem hún stýrði daglegum rekstri og áætlanagerð. Hún gerðist svo framkvæmdastjóri Infomentor árið 2018 og gegnir því starfi í dag. Þar stýrir hún daglegum rekstri fyrirtækisins, ber ábyrgð á stefnumótun, áætlanagerð og þróun á hugbúnaðarlausnunum Mentor og Karellen, upplýsinga- og stjórnkerfum fyrir skólastofnanir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum