Hoppa yfir valmynd
31. maí 2018 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Dagpeningar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands - auglýsing nr. 1/2018

Frá Ísafirði Mynd/Hugi Ólafsson - mynd

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Viðmið ferðakostnaðarnefndar eru hámarksupphæðir vegna greiðslu slíkra reikninga.

1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 35.900
2. Gisting í einn sólarhring " 24.600
3. Fæði hvern heilan dag, minnst10 tíma ferðalag " 11.300
4. Fæði í hálfan dag, minnst 6 tímaferðalag " 5.650

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2018. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2017 dags. 31. október 2017.

Nefndin fer þess á leit við ráðuneyti og stofnanir að viðmiðunarfjárhæðir um greiðslur dagpeninga um gistingu og veitingar verði kynntar starfsfólki.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum