Hoppa yfir valmynd
31. október 2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Jafnréttisvogin kynnt á ráðstefnunni Rétt´upp hönd

Ásmundur Einar Daðason á ráðstefnunni Rétt´upp hönd - myndVelferðarráðuneytið

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, ræddi um hlut kvenna í stjórnunarstöðum stofnana og fyrirtækja og hver þróunin hefur verið síðustu ár í þessum efnum á ráðstefnu Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) í dag. Á ráðstefnunni var fjallað um hreyfiaflsverkefnið Jafnvægisvogina sem FKA vinnur að samkvæmt samstarfssamningi við velferðarráðuneytið.

Verkefnið er til fimm ára og er markmið þess að stuðla að aukinni vitundarvakningu um gildi jafnréttis og fjölbreytileika fyrir afkomu fyrirtækja auk hvatningar til atvinnurekenda um að gera betur þegar kemur að hlut kvenna í stjórnum og röðum stjórnenda hérlendis.

Ásmundur Einar sagði í ræðu sinni að það væri ekki að ástæðulausu sem litið væri til Íslands sem fyrirmyndar í jafnréttismálum, því hér hefði náðst eftirtektarverður árangur í jafnréttisbaráttunni í ýmsum efnum á alþjóðlegum mælikvörðum, auk merkra áfanga í sögulegu samhengi: „Margt hefur áunnist frá setningu fyrstu jafnréttislaganna fyrir rúmum fjörutíu árum en þó sýnir tölfræðin að við eigum enn langt í land til að tryggja jafna möguleika kvenna og karla til valda og áhrifa“ sagði ráðherra meðal annars í ræðu sinni. Hann benti á þá ríku áherslu sem lögð hefði verið á jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði hér á landi þar sem litið hafi verið svo á að atvinnuþátttaka og efnahagslegt sjálfstæði kvenna sé forsenda fyrir framgangi kynjajafnréttis á öðrum sviðum samfélagsins: „Í því ljósi er athyglisvert hve erfitt okkur hefur reynst að brjóta upp kynjaskiptingu starfa, tryggja launajafnrétti og jafna völd og áhrif kynjanna“ sagði Ásmundur meðal annars og lagði áherslu á að í ljósi þessa bíði enn erfið verkefni sem þarfnist úrlausnar. Hann ræddi um árangur laga um kynjakvóta sem tóku gildi árið 2013 og hve hægt gangi að ná markmiðum laganna þótt þróunin sé í rétta átt: „Ég er sannfærður um að það væri íslensku atvinnulífi til framdráttar að auka hlut kvenna í efsta stjórnendalaginu – í raun nægir að líta til stjórnmálanna en aukin þátttaka kvenna hefur haft mjög jákvæð áhrif á ásýnd og inntak þeirra og við vitum að aukið jafnrétti hefur jákvæð áhrif á vinnustaðamenningu.“

Eitt af verkefnum Jafnvægisvogarinnar var að gera samantekt á stöðu stjórnenda eftir kyni í íslensku atvinnulífi og hjá opinberum aðilum. Hafa niðurstöðurnar verið birtar í mælaborði sem aðgengilegt er á heimasíðu FKA.

  

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum