Hoppa yfir valmynd
29. nóvember 2013 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 65/2013, úrskurður 29. nóvember 2013

Mál nr. 65/2013
Eiginnafn: Zoë

Hinn 29. nóvember 2013 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 65/2013 en erindið barst nefndinni 10. september 2013.

Í máli þessu er sótt um að eiginnafnið Zoë verði tekið á mannanafnaskrá. Til þess að það sé heimilt verður nafnið að fullnægja öllum skilyrðum 5. gr. laga um mannannöfn nr. 45/1996. Í 1. mgr. ákvæðisins er kveðið á um að nafn skulu geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli, að nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og að síðustu að nafnið skuli ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

Hér reynir á þriðja skilyrðið, um samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Bókstafurinn ë er ekki notaður í íslensku ritmáli. Á þennan rithátt nafnsins er því aðeins heimilt að fallast ef hefð er fyrir honum í skilningi mannanafnalaga.

Til skýringar skal tekið fram að hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Hins vegar tekur hugtakið hefð einnig til nýrri nafna. Í vafatilvikum styðst túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 m.a. við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Í því máli sem hér um ræðir liggur fyrir, samkvæmt gögnum Þjóðskrár, að engin kona ber nafnið Zoë. Virðist því ljóst að skilyrði hefðar í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 eru ekki fyrir hendi og því ekki mögulegt að fallast á nafnið. Áréttað skal að með þessu er ekki hafnað eiginnafninu sem slíku, heldur þeim rithætti á því sem sótt er um.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Zoë (kvk.) er hafnað. 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum