Hoppa yfir valmynd
11. september 2014 Heilbrigðisráðuneytið

Staðreyndir um greiðsluþátttöku vegna S-merktra lyfja

Lyf
Lyf

Sjúklingar sem liggja inni á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum munu ekki taka þátt í kostnaði vegna lyfja sem þeir fá meðan á innlögn stendur frekar en verið hefur, þrátt fyrir áformaðar breytingar á greiðsluþátttöku sjúklinga í S-merktum og leyfisskyldum lyfjum. Greiðsluþátttakan mun einungis ná til notkunar þessara lyfja utan sjúkrahúsa og heilbrigðisstofnana.

Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verða S-merkt lyf og leyfisskyld lyf sem ávísað er til notkunar utan sjúkrahúsa felld undir lyfjagreiðslukerfið frá 1. janúar næstkomandi og verður fyrirkomulagið þar með hið sama og í Danmörku, Noregi og Svíþjóð.

Rök fyrir breytingunni eru margþætt. Hún styður upphaflegt markmið nýja greiðsluþátttökukerfisins um að mismuna ekki sjúklingum í kostnaði eftir sjúkdómum og tegundum lyfja. Auðveldara verður að hafa eftirlit með notkun og kostnaði og ætlað er að breytingin dragi eitthvað úr notkun þessara lyfja þar sem það hefur sýnt sig að séu lyf ókeypis er þeim ávísað í of miklum mæli og oft valin frekar en ódýrari úrræði sem sjúklinga greiða fyrir. Áætlað er að útgjöld ríkisins vegna þessarar breytingar lækki kostnað ríkisins um 145 milljónir króna en heildarkostnaður S-merktra og leyfisskyldra lyfja eru rúmir 6,4 milljarðar á ári.

Líkt og verið hefur munu sjúklingar sem liggja inni á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum ekki taka þátt í kostnaði lyfja sem þeir fá meðan á innlögn stendur. Áfram verður hægt að sækja um lyfjaskírteini fyrir sjúklinga með alvarlegan geðrofssjúkdóm, nýrnabilun á lokastigi og í meðferð við lok lífs, sem veitir þeim tiltekin lyf án greiðsluþátttöku.

Vitað er að margir sjúklingar sem þurfa á S-merktum og leyfisskyldum lyfjum að halda nota samhliða ýmis önnur lyf sem falla undir lyfjagreiðslukerfið. Greiðsluþátttökukerfið setur þak á heildarlyfjakostnað sjúklinga á ársgrundvelli og tryggir jafnræði.

Heilbrigðisráðherra mun skipa hóp fag- og hagsmunaaðila til að útfæra nákvæmlega framangreindar breytingar til að valda sem minnstu óhagræði notenda vegna þeirra.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum