Hoppa yfir valmynd
21. janúar 2022 Dómsmálaráðuneytið

Námskeið til undirbúnings prófi til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður

Prófnefnd samkvæmt reglugerð nr. 1095/2007 um próf til að öðlast réttindi til að vera héraðsdómslögmaður, sbr. lög nr. 77/1998 um lögmenn og lög nr. 93/2004, hefur ákveðið að halda námskeið vorið 2022. Prófraunin skiptist í tvo hluta, auk verklegrar prófraunar.

Kennslugreinar í fyrri hluta eru: Einkamálaréttarfar, sakamálaréttarfar, fullnusturéttarfar, samning lögfræðilegrar álitsgerðar og lögfræðileg skjalagerð. Kennslu­greinar í síðari hluta eru: Réttindi og skyldur lögmanna, þar á meðal siðareglur lögmanna og þóknun fyrir lögmannsstörf, málflutningur og önnur störf lög­manna, svo sem samningsgerð og meðferð stjórnsýslumála. Í tengslum við nám­skeiðið fer fram kynning á rekstri lögmannsstofa og starfsemi Lögmannafélags Íslands og úrskurðarnefndar lögmanna. Auk kennslu í fyrri og síðari hluta er verklegur hluti, sem felst í aðstoð við flutning eins máls fyrir héraðsdómi. Kennsla á námskeiðinu fer fram í kennslusal Lögmannafélags Íslands að Álftamýri 9, 108 Reykjavík. Vegna aðstæðna er gert ráð fyrir að þátttakendum bjóðist að taka þátt í að minnsta kosti fyrri hluta námskeiðsins gegnum fjarfundabúnað. Við skráningu verða þátttakendur beðnir um að tilgreina hvort þeir hyggist sitja námskeiðið í kennslusal eða gegnum fjarfundabúnað.


Stefnt er að því að kennsla á fyrri hluta fari fram dagana 14. til 25 febrúar 2022. (Tímar frá 09:15-12:00 og frá 13:15 eða 14:15-17:00 eða 18:00). Jafnframt er stefnt að því að próf í fyrri hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 4. til 18. mars. Nánari upplýsingar um fjölda kennslustunda og fyrirkomulag kennslu verða kynntar síðar.

Stefnt er að því að kennsla í síðari hluta fari fram dagana 24. mars til 1. apríl 2022. Þá er stefnt að því að próf í síðari hluta námskeiðsins verði haldin á tímabilinu 5. til 8. apríl 2022.

Verklega prófraun skal þreyta eftir að fyrra hluta prófi er lokið og eigi síðar en einu ári eftir að lokið er síðari hluta prófi.

Gjald fyrir þátttöku á fyrri hluta prófraunar er kr. 316.000 og greiðist við skráningu. Gjald fyrir síðari hluta verður ákveðið síðar. Prófgjald er innifalið í nám­skeiðsgjaldi.

Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarkerfi á heimasíðu Lögmannafélags Íslands á slóðinni www.lmfi.is. Við skráningu skal leggja fram afrit próf­skírteinis eða vottorð háskóla til staðfestingar því að umsækjandi hafi lokið fullnaðarnámi í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi. Hægt er að senda þær upplýsingar með tölvupósti á netfangið: [email protected] eða senda á skrif­stofu Lögmannafélagsins að Álftamýri 9, 108 Reykjavík.

Frestur til að skrá sig á námskeið er til og með 8. febrúar 2022.

 

Vakin er athygli á að vegna ákvarðana stjórnvalda í tengslum við Covid 19 kann skipulag námskeiðsins að breytast fyrirvaralítið. Er allt efni auglýsingar þessarar sett fram með þeim fyrirvara.


Dómsmálaráðuneytinu 21. janúar 2022

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum