Hoppa yfir valmynd
13. desember 2023 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 763/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 13. desember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 763/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23110140 og KNU2311010041

Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli

[…] og

[…]

Málsatvik

Hinn 22. nóvember 2023 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 24. maí 2023, um að synja einstaklingum er kveðast heita […], vera fæddur […], (hér eftir nefndur M), og […], vera fædd […], (hér eftir nefnd K), ríkisborgurum Sómalíu, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurðir kærunefndar voru birtir fyrir aðilum 23. nóvember 2023. Hinn 30. nóvember 2023 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurðum nefndarinnar. Hinn 7. desember 2023 barst kærunefnd sameiginleg greinargerð aðila ásamt fylgigögnum.

Aðilar krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan þau fara með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Málsástæður aðila

Í greinargerð aðila kemur fram að þau muni á næstu dögum þingfesta mál á hendur íslenska ríkinu og krefjast ógildingar á úrskurðum kærunefndar útlendingamála í málum þeirra. Aðilar byggja að verði ekki fallist á frestun réttaráhrifa í málum þeirra muni það valda þeim óafturkræfum skaða. Aðilar telja að lífi þeirra sé í hættu stefnt með endursendingu til Sómalíu. Í því samhengi vísa aðilar til 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Aðilar byggja á því að verði þeim brottvísað frá landinu áður en meðferð dómstóla á máli þeirra ljúki muni þau ekki eiga raunhæft úrræði til þess að bera ákvarðanir stjórnvalda undir dómstóla.

Aðilar telja að kærunefnd hafi gert mistök í tengslum við mat á auðkenni þeirra með því að komast að þeirri niðurstöðu að vegabréf K hafi ekki verið gefið út í samræmi við þær verklagsreglur sem nefndin hefði kynnt sér um útgáfu sómalskra vegabréfa. Aðilar mótmæla framangreindu mati kærunefndar og vísa til þess að sendiráðið í Sómalíu í Brussel fullyrði að vegabréfið hafi verið gefið út í samræmi við allar verklagsreglur, sbr. framlagt fylgiskjal nr. 1. Þá vísa aðilar til þess að í úrskurði kærunefndar í máli K hafi nefndin vísað til þess að hafa haft samband við nafngreindan framkvæmdastjóra hjá Alþjóðaendurhæfingarráðinu fyrir fórnarlömb pyntinga. Samkvæmt framlögðu tölvubréfi, sbr. fylgiskjal nr. 2, virðist framkvæmdastjóri Alþjóðaendurhæfingarráðsins ekki hafa verið meðvituð um að hafa borist erindi frá kærunefnd. Aðilar telja að framangreint gefi til kynna að mistök hafi átt sér stað við meðferð málsins og að það muni valda þeim óafturkræfum skaða að vísa þeim frá landinu áður en dómstólar fjalli um mál þeirra.

Þá byggja aðilar beiðni sína um frestun réttaráhrifa á því að það muni reynast þeim erfitt að eiga í sambandi við lögmann sinn hér á landi þar sem óvíst sé hvort þau muni eiga kost á því að vera í netsambandi sem sé eina leiðin fyrir þau að til þess að eiga í samskiptum við lögmann sinn.

Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.

Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu þeirra að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að þau skuli yfirgefa landið takmarki möguleika þeirra til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Aðilar hafa möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt þau séu ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Hvað varðar málsástæðu aðila um að í heimaríki muni þau ekki geta átt í netsambandi við lögmann sinn á Íslandi þá vekur kærunefnd athygli á því að í Mógadisjú, Sómalíu, er til staðar bæði internet og rafmagn og því ljóst að ekki sé miklum erfiðleikum bundið fyrir aðila að hafa samband við lögmann sinn bæði í gegnum síma og tölvu.

Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurða í málum aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.

Með úrskurðum kærunefndar útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki þeirra séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur að gögn sem aðilar lögðu fram með beiðni um frestun réttaráhrifa séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að þau breyti niðurstöðu nefndarinnar varðandi þetta mat. 

Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í málum aðila. Ekkert í gögnum mála aðila, þ.m.t. þeim gögnum sem fylgdu beiðni aðila um frestun réttaráhrifa, bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðilum til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málum aðila á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu mála þeirra. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurða kærunefndar í málum þeirra.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ

Kröfu aðila er hafnað.

The appellant’s request is denied.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

 

Þorsteinn Gunnarsson, formaður

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum