Hoppa yfir valmynd
10. nóvember 2016 Dómsmálaráðuneytið

Úrskurður nr. 433/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. nóvember 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 433/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU16060032

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 21. júní 2016 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. júní 2016, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Ítalíu. [...]

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar, sbr. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002 og 1. mgr. 17. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin).

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 26. febrúar 2016. Við leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni, þann 29. febrúar 2016, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Þann 8. mars 2016 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um hæli beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 22. mars 2016 barst svar frá ítölskum yfirvöldum þar sem þau samþykktu beiðni um viðtöku kæranda, sbr. 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 13. júní 2016 að taka umsókn kæranda um hæli hér á landi ekki til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Kærandi kærði ákvörðunin við birtingu þann 21. júní sl. til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 21. júní 2016. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 7. júlí sl.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að fyrir liggi að ítölsk stjórnvöld beri ábyrgð á afgreiðslu umsóknar kæranda um hæli og liggi staðfesting ítalskra stjórnvalda fyrir á þeirri skyldu og ábyrgð.

Í hinni kærðu ákvörðun er fjallað um aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð á Ítalíu og er í því sambandi meðal annars vísað til alþjóðlegra skýrslna. Þá er dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (mál nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2014 gerð skil og tekið fram að Útlendingastofnun geti ekki ráðið af dómnum að almennt hafi ekki verið í lagi að senda sérstaklega viðkvæma einstaklinga til Ítalíu. Auk þess hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ekki lagst gegn endursendingum þangað í kjölfar dómsins. Jafnframt er vísað til úrlausnar Mannréttindadómstólsins í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Í niðurstöðu Útlendingastofnunar er aðbúnaði hælisleitanda í svokölluðum SPRAR heimilum jafnframt gerð skil auk þess sem raktar eru breytingar á tilskipun 2013/33/ESB um móttökuaðstæður hælisleitenda og tilskipun 2013/32/ESB um samræmda málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þessar breytingar hafi verið innleiddar í ítalskan rétt 15. september 2015. Þá hafi einnig verið gerðar breytingar á reglum um móttökustöðvar á Ítalíu. Það sé mat Útlendingastofnunar að skoða þurfi sérstaklega í hverju tilviki fyrir sig hvort senda eigi einstaklinga til Ítalíu sem séu í viðkvæmri stöðu.

Í niðurstöðum Útlendingastofnunar er að finna upptalningu á þeim hópum sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Fram kemur að sú upptalning hafi verið innleidd í ítalskan rétt með lögum nr. 142/2015. Kærandi sé ungur karlmaður sem kvaðst [...]. [...]. Að mati Útlendingastofnunar geti það, að [...], eitt og sér ekki leitt til þess að kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Þá var byggt á því að kærandi hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun kveðist [...]. Í greinargerð kæranda hafi komið fram að skoða bæri stöðu kæranda [...] sem sérstaklega viðkvæma vegna [...].

Í niðurstöðum Útlendingastofnunar kemur fram að stofnunin dragi ekki frásögn kæranda í efa um þær raunir sem kærandi kann að hafa þolað og að þær hafi tekið á hann. Kæranda hafi hins vegar staðið til boða sálfræðiaðstoð á meðan hælismál hans var til meðferðar en hann hafi ekki fært sér þá þjónustu í nyt. Þá hafi ekkert komið fram sem gefi tilefni til að efast um [...]. Í niðurstöðum Útlendingastofnunar er þess getið að þurfi kærandi á læknis- eða sálfræðiþjónustu að halda sé ekkert sem bendi til þess að ítölsk stjórnvöld geti ekki veitt honum slíka þjónustu.

Fram hafi komið í máli kæranda að hann hafi sætt [...]. Þær hafi hann kært til lögreglu en lögreglan ekkert aðhafst. Útlendingastofnun líti þó til þess að samkvæmt fyrirliggjandi heimildum sé eftirfylgni við hvers konar brotum gegn refsilöggjöf á Ítalíu góð, þeir sem þar dveljist njóti almennra mannréttinda og í landinu sé skilvirkt kerfi sem íbúar geti leitað til telji þeir á sér brotið. Niðurstaða Útlendingastofnunar sé sú að aðstæður á Ítalíu séu almennt til þess fallnar að tryggja mannréttindi og öryggi kæranda og að lögregluyfirvöld þar í landi geti veitt honum viðeigandi vernd þegar við á.

Þá sé frásögn kæranda heldur ekki dregin í efa er varðar aðstæður hans á Ítalíu. Til þess verði þó að líta að kærandi sótti um hæli á Ítalíu í nóvember 2013 og að hann sé með gilt dvalarleyfis- og búsetuskírteini þar í landi. Kærandi eigi rétt á húsnæði við komuna til landsins samkvæmt ítölskum lögum. Þá teljist aðstæður kæranda ekki sambærilegar þeim sem um var að ræða í máli Tarakhel gegn Sviss. Kærandi [...] og samkvæmt framburði hans hafi hann ekki borið því við að hafa sætt meðferð af hálfu ítalskra yfirvalda sem að mati Útlendingastofnunar geti talist brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Ítalíu. Lagt var til grundvallar að Ítalía virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement).

Því fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann vilji ekki fara aftur til Ítalíu þar sem þar bíði hans ekkert nema betl. Hann sé húsnæðis- og atvinnulaus og lífið hafi engan tilgang. Hann óttist glæpagengi á götum Ítalíu og kveðst margoft hafa [...] .

Í greinargerð kæranda eru ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar rakin auk ákvæða laga um útlendinga og lögskýringargögn er liggja þeim að baki. Þá er að finna nokkuð ítarlega umfjöllun um meginregluna um „non-refoulement“. Kærandi bendir á að ákvæði 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kveði á um heimild til handa stjórnvöldum um að synja kæranda um efnismeðferð en ekki skyldu.

Aðstæðum hælisleitenda á Ítalíu eru einnig gerð skil og tölfræði úr alþjóðlegum skýrslum rakin. Þar að auki kemur fram að hæliskerfi Ítalíu hafi legið undir miklum ámælum undanfarin ár og hafi athugasemdir og gagnrýni varðandi aðbúnað og aðstæður hælisleitenda á Ítalíu komið fram hjá fjölmörgum alþjóðlegum stofnunum. Vandkvæði ítalska hæliskerfisins hafi m.a. verið staðfest af Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins í skýrslu hans frá árinu 2012. Kærandi telji slíkan kerfisbundinn galla vera á aðbúnaði og meðferð hælisleitenda á Ítalíu að ljóst sé að hann standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu verði hann sendur aftur til Ítalíu. Kærandi bendir á að mikilvægt sé að aðildarríki mannréttindasáttmálans séu meðviðtuð um galla við meðferð hælisumsókna eða í móttöku hælisleitenda í því ríki sem um ræðir. Að mati kæranda leiki enginn vafi á því að íslensk stjórnvöld séu meðvituð um umrædda galla í hæliskerfi Ítalíu, sbr. m.a. úrskurð innanríkisráðuneytisins í máli nr. IRR14030281 og greinargerð ráðuneytisins um endursendingar til Ítalíu frá desember 2015.

Kærandi telji sig vera einstakling í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í viðtali við Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að [...].

Þá liggi fyrir að kærandi hafi þurft að hafast við á götum Ítalíu á meðan mál hans hafi verið til meðferðar hjá ítölskum stjórnvöldum. Tilraunir hans til að leita aðstoðar ítalskra stjórnvalda hafi engu skilað og því hafi hann sofið á járnbrautarstöð og betlað sér til matar. Í hælisviðtali hafi komið í ljós að hann sé bæði ólæs og óskrifandi og svo virðist sem hann hafi ekki hlotið grunnmenntun í heimalandi sínu. Kærandi bendir á að í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Grikklandi (mál nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011 komi fram að þótt engin börn fylgi hælisleitanda telji dómstólinn það geta verið brot á 3. gr. sáttmálans ef hælisleitendur muni við endursendingu ekki fá aðgang að húsnæði og hafi enga möguleika á að tryggja grunnþarfir sínar. Þetta þýði að stjórnvöld þurfi að hafa hliðsjón af aðstæðum sérstaklega viðkvæmra hópa. Ungir einstæðir karlmenn geti ekki síður en aðrir talist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu í ljósi einstaklingsbundinna aðstæðna þeirra eða sögu eða þeirra aðstæðna sem bíði þeirra í móttökuríki. Þá vísar kærandi einnig í fyrrnefnda greinargerð innanríkisráðuneytisins.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að ítölsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort rétt sé að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Ítalíu.

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má heldur ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu í málum er varða Grikkland og Ítalíu getur sú staða komið upp að óheimilt sé að endursenda hælisleitendur til einstakra ríkja vegna ástands í viðkomandi móttökuríki. Aðildarríki mannréttindasáttmálans verða að vera meðvituð um alvarlega galla sem kunna að vera á meðferð hælisumsókna eða móttöku hælisleitenda í því aðildarríki sem endursenda skal til á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Verður því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð á Ítalíu.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

* Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, desember 2015)

* Italy 2015 Human Rights Report (United States Department of State, 13. apríl 2016)

* UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013)

* Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014)

* Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, október 2013)

* Report by the Special Rapporteur on the human rights of migrants, Francouis Crépeau, on his follow-up mission to Italy (2-6 December 2014) (United Nations General Assembly, 1. maí 2015)

* Information note, dublin transfers post-Tarakhel: update on European case law and practice (Elenea, European legal network on asylum, október 2015)

* Endursendingar hælisleitenda til Ítalíu, greinargerð innanríkisráðuneytisins í desember 2015 (Innanríkisráðuneytið, desember 2015)

* Report of the Working Group of Experts on People of African Descent on its mission to Italy (UN Human Rights council, 12. ágúst 2016)

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk yfirvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar hælisleitenda og flóttamanna þar í landi. Hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn ítalsks hæliskerfis til að taka við skyndilegu og verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað hælisleitenda og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnun gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma hælisleitendur sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk yfirvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja. Hins vegar hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ekki lagst gegn flutningi hælisleitenda eða flóttamanna til Ítalíu.

Í september á síðasta ári samþykktu ítölsk stjórnvöld tilskipun (LD 142/2015) sem innleiðir ýmsar betrumbætur á ítalska hæliskerfinu. Opnaðar hafa verið stöðvar með gistirýmum (e. hotspots) þar sem þeir einstaklingar sem koma inn fyrir landamæri Ítalíu eru skráðir og fingraför þeirra eru tekin. Um er að ræða samstarf ítalskra stjórnvalda við m.a. Frontex og Europol og markmiðið með stöðvunum er m.a. að auka skilvirkni í hælismálum. Þeir einstaklingar sem skilgreindir eru sem hælisleitendur eru fluttir frá stöðvunum á svokallaðar svæðisbundnar miðstöðvar (e. Regional Hubs) sem skulu leysa af hólmi móttökumiðstöðvar á fyrsta stigi. Þar sækja þeir svo um hæli í landinu. Hið svokallaða SPRAR kerfi móttökumiðstöðva fer nú stækkandi og er fjölgun gistirýma í kerfinu m.a. svar við skorti á gistirýmum í hæliskerfi landsins.

Kærunefndin hefur tekið mið af dómi Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015 þar sem fjallað var um málsmeðferð og skilyrði til móttöku hælisleitanda á Ítalíu og komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri fyrir hendi kerfislægur galli sem leiddi til þess að hælisleitandi standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta þar ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 45. gr. útlendingalaga.

Kærunefndin vill einnig benda á að Mannréttindadómstóll Evrópu hefur ítrekað í dómum sínum og ákvörðunum, sbr. t.d. í dómi í máli A.S. gegn Sviss (nr. 39350/13) frá 30. júní 2015 og í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, að ekki sé hægt að túlka 3. gr. mannréttindasáttmálans á þá vegu að krafa sé á aðildarríkjunum að veita öllum einstaklingum innan lögsögu þeirra heimili.

Innanríkisráðuneytið gaf út greinargerð um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu í desember 2015. Þar kemur fram að ráðuneytið meti svo að ágallar á aðbúnaði og móttökuskilyrðum hælisleitenda á Ítalíu séu ekki slíkir að þeir gefi ástæðu til að ætla að endursendingar þangað muni almennt brjóta gegn

alþjóðlegum skuldbindingum íslenskra stjórnvalda. Lagt er til að meta skuli aðstæður í hverju tilviki fyrir sig og enn fremur að þeir sem teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu skuli ekki sendir til Ítalíu.

Í ljósi dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu og Hæstaréttar sem og framangreindrar greinargerðar innanríkisráðuneytisins um endursendingar hælisleitenda til Ítalíu telur kærunefndin að skoða þurfi sérstaklega hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Kærandi er ungur, [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 25. apríl sl. var kærandi spurður um heilsufar sitt. Kærandi kvaðst [...]. Í viðtali hjá kærunefnd kom fram að kærandi [...]. Engin læknisfræðileg gögn hafa verið lögð fram í málinu. Kærandi hefur jafnframt lýst því að hafa orðið fyrir [...]. Þá hafi kærandi orðið fyrir [...]. Í greinargerð kæranda kemur fram að [...]. Í viðtali hjá kærunefnd gætti ósamræmis í framburði kæranda og verður því frásögn hans um að [...] ekki lögð til grundvallar. Það er því mat kærunefndarinnar, m.a. með vísan til viðtals hjá kærunefnd og upplýsinga um heilsufar kæranda, að kærandi sé ekki í viðkvæmri stöðu sem komi í veg fyrir endursendingu hans til Ítalíu.

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda á Ítalíu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Ítalíu brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Með því er tryggt að kærandi verði ekki sendur áfram til svæðis sem 45. gr. laga um útlendinga tekur til. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Athugun kærunefndar hefur einnig leitt í ljós að telji kærandi sig vera í hættu eða öryggi hans sé ógnað á Ítalíu þá geti hann leitað til lögregluyfirvalda í landinu.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 25. apríl sl. ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Að þessu virtu og með vísan til gagna málsins er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Í því sambandi tekur kærunefnd fram að samkvæmt upplýsingum sem kærandi veitti í viðtali hjá nefndinni [...]. Þá benda gögn málsins ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna, sbr. framangreint ákvæði.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um fyrri hluta 2. mgr. 46. gr. a sem lítur að tengslum kæranda við Ísland. Aftur á móti er ekki vísað til seinni hluta ákvæðisins sem varðar sérstakar ástæður. Þá er eingöngu vísað til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laganna í lok ákvörðunarinnar. Kærunefnd telur skorta á að í rökstuðningi ákvörðunarinnar séu atvik heimfærð til viðeigandi ákvæða íslenskra laga, sbr. 1. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærunefnd hefur litið til þess að þrátt fyrir þennan annmarka fjallar ákvörðunin um þær ástæður sem gætu leitt til þess að mál yrði tekið til efnismeðferðar. Kærunefnd telur því að þessi ágalli sé ekki svo verulegur að vísa beri málinu til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun eins og hér stendur sérstaklega á.

Í máli þessu liggur fyrir að ítölsk stjórnvöld bera ábyrgð á umsókn kæranda um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Ítalíu með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson Anna Tryggvadóttir

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum