Hoppa yfir valmynd
5. mars 2021 Dómsmálaráðuneytið

Breytingar á hegningarlögum í samráðsgátt

Frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum er varða barnaníðsefni, atriði sem hafa áhrif á refsihæð, hatursorðæðu og mismunun sökum fötlunar eru komin í Samráðsgátt stjórnvalda. Hægt verður að koma að athugasemdum og umsögnum á framfæri til 12. mars n.k. 

Með frumvarpinu sem samið er af refsiréttarnefnd, eru lagðar til breytingar á nokkrum ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Þannig er í fyrsta lagi lagt til að við ákvörðun hegningar, sbr. 70. gr. laganna, beri að taka til greina hvort brot megi rekja til nánar tilgreindra atriða er varða brotaþola persónulega og brot þannig af meiði hatursglæpa, auk þess sem lagt er til að að jafnaði skuli taka það til greina til þyngingar refsingu ef brot er framið í nærveru barns yngra en 15 ára. Í öðru lagi, og nátengt fyrsta atriðinu, er lagt til að hatursorðræðuákvæði 233. gr. a almennra hegningarlaga verði rýmkað þannig að þjóðlegur uppruni (e. ethnic origin) falli ótvírætt þar undir sem og að ákvæðið veiti fólki með fötlun og fólki með ódæmigerð kyneinkenni refsivernd til samræmis við aðra hópa sem eru taldir þurfa á sérstakri vernd að halda. Í þriðja lagi er lögð til breyting á 180. gr. almennra hegningarlaga sem gerir það refsivert að neita einstaklingi með fötlun um vöru eða þjónustu ef að baki neituninni búa ekki réttlættanlegar ástæður. Í fjórða lagi er lagt til að barnaníðsákvæði 210. gr. a laganna verði skipt upp í fjórar málsgreinar, í efnislýsingu komi fram skilgreining á barnaníð, hámarksrefsing verði hækkuð, en jafnframt kveðið á um að ákvæðið taki ekki til persónulegra samskipta ungmenna að nánari skilyrðum uppfylltum. Loks er í fimmta lagi lagt til að við lögin bætist nýtt ákvæði, 210. gr. c, um innbyrðis ítrekunartengsl barnaníðsákvæðanna, þ.e. 210. gr. a og 210. gr. b.

Koma má athugasemdum og umsögnum á framfæri á Samráðsgátt stjórnvalda.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum