Hoppa yfir valmynd
13. apríl 2011 Dómsmálaráðuneytið

Mannanafnanefnd, úrskurðir 4. apríl 2011

Mál nr. 15/2011                    Millinafn: Berg

 

 

Hinn 4. apríl 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 15/2011 en erindið barst nefndinni 23.  febrúar 2011:

 

Í 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn segir að millinafn skuli dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu. Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn. Þó er eiginnafn foreldris í eignarfalli heimilt sem millinafn. Millinöfn, sem eru mynduð með sama hætti og föður- og móðurnöfn, sbr. 3. mgr. 8. gr., eru óheimil.

 

Eiginnafnið Berg er á mannanafnaskrá sem eiginnafn karls og er einnig til sem ættarnafn. Af þessum sökum er óheimilt að taka upp nafnið Berg sem almennt millinafn.  Ættarnafn er einungis heimilt sem millinafn í þeim tilvikum sem um getur í 3. og 4. mgr. 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Þar sem úrskurðarbeiðandi fellur ekki undir þar tilgreind skilyrði er beiðni um nafnið Berg sem millinafn hafnað.

 Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Berg er hafnað.

 

Mál nr. 20/2011                    Eiginnafn:     Miniar

 

Hinn 4. apríl 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 20/2011 en erindið barst nefndinni 8. mars:

Öll skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu.

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Ritháttur nafnsins Miniar (kk.) getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem a er ekki ritað á eftir einhljóðinu i. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

a.   Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

b.   Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

c.   Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

d.   Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;

e.   Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.

2.   Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

3.   Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Samkvæmt gögnum Þjóðskrár er enginn sem ber nafnið Miniar.

Eiginnafnið Miniar uppfyllir þar af leiðandi ekki öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.

Úrskurðarorð:

 

Beiðni um eiginnafnið Miniar (kk.) er hafnað.

 

 

 

Mál nr. 21/2011                    Eiginnafn:     Súsan

 

Hinn 4. apríl 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 21/2011 en erindið barst nefndinni 10. mars:

Eiginnafnið Súsan (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Súsanar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Súsan (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 22/2011                    Eiginnafn:     Melissa

 

Hinn 4. apríl 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 22/2011 en erindið barst nefndinni 17. mars:

Eiginnafnið Melissa (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Melissu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Melissa (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 24/2011                    Eiginnafn:     Birtir

 

Hinn 4. apríl 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 24/2011 en erindið barst nefndinni 17. mars:

Eiginnafnið Birtir (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Birtis, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Birtir (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 27/2011                    Eiginnafn:     Ýja

 

Hinn 4. apríl 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2011 en erindið barst nefndinni 1. apríl:

Eiginnafnið Ýja (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Ýju, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ýja (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

 

Mál nr. 28/2011                    Eiginnafn:     Dalli

 

Hinn 4. apríl 2011 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 28/2011 en erindið barst nefndinni 1. apríl:

Eiginnafnið Dalli (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Dalla, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Dalli (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum