Hoppa yfir valmynd
6. maí 2021 Utanríkisráðuneytið

Rjúfa þarf vítahring átaka og hungurs

Ljósmynd: gunnisal - mynd

„Átök og hungur eru tvær hliðar á sama peningnum. Því þarf samtímis að ráðast gegn átökum og hungri. Við verðum að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að binda endi á þennan vítahring. Það er forsenda stöðugleika og friðar,“ segir António Guterres framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í formála nýrrar skýrslu um fæðuóöryggi í heiminum á síðasta ári. Þá bjuggu að minnsta kosti 155 milljónir manna við alvarlegan matarskort, fleiri en síðustu fimm árin.

Sameinuðu þjóðirnar gefa árlega út í samstarfi við Evrópubandalagið og ýmsar alþjóðastofnanir skýrslu um fæðuóöryggi og samkvæmt nýju skýrslunni fjölgaði hungruðum á síðasta ári um 20 milljónir manna frá árinu 2019. Meginástæðurnar eru sem fyrr vopnuð átök og öfgar í veðurfari en á síðasta ári leiddi líka efnahagssamdráttur vegna COVID-19 til fjölgunar þeirra sem vart höfðu til hnífs og skeiðar.

Hungraðir voru hlutfallslega flestir í Afríkuríkjum. Vopnuð átök voru meginskýring á sulti 100 milljóna manna, 40 milljónir bjuggu við alvarlegan matarskort vegna efnahagsáfalla og öfgar í veðurfari skýrðu alvarlegan fæðuskort hjá 16 milljónum Afríkubúa. Verst var ástandið í Burkina Fasó og Suður-Súdan en í öðrum heimshlutum voru Jemen, Afganistan, Sýrland og Haítí í hópi ríkja með hátt hlutfall hungraðra.

Í skýrslunni kemur fram að stríðsátök verði áfram meginástæða matvælaskorts á þessu ári. Ýmiss neikvæð áhrif í tengslum við COVID-19 og öfgar í veðurfari skýri þó áfram alvarlegan matarskort í mörgum ríkjum.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

2. Ekkert hungur
16. Friður og réttlæti
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum