Hoppa yfir valmynd
20. maí 2011 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skipun trúnaðarmanna fatlaðs fólks

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað trúnaðarmenn fatlaðs fólks í samræmi við reglugerð nr. 172/2011. Verkefni þeirra er að fylgjast með högum fatlaðs fólks og aðstoða það við hvers konar réttindagæslu.

Fatlaður einstaklingur getur leitað til trúnaðarmanns með hvaðeina sem varðar réttindi hans, fjármuni og önnur persónuleg mál. Trúnaðarmaður skal veita honum stuðning og aðstoða hann við að leita réttar síns eftir því sem við á. Einnig er gert ráð fyrir að hver sá sem telur að brotið sé á réttindum fatlaðs einstaklings geti tilkynnt það trúnaðarmanni auk þess sem trúnaðarmaður getur tekið upp mál að eigin frumkvæði. Trúnaðarmaður skal vera sýnilegur og standa fyrir fræðslu fyrir fatlað fólk og þá sem starfa með því.

Trúnaðarmennirnir eru átta og starfa í landshlutum sem hér segir:

Reykjavík og Seltjarnarnes

  • Halldór Gunnarsson s. 858 1550
  • Maggý Hrönn Hermannsdóttir s. 858 1627

Kópavogur, Garðabær, Álftanes, Mosfellsbær og Kjós

  • Ingibjörg Guðrúnardóttir s. 858 1753

Hafnarfjörður og Suðurnes
  • Kristín Sigurjónsdóttir s. 858 1798

Vesturland og Vestfirðir
  • Jón Þorsteinn Sigurðsson s. 858 1939

Norðurland vestra, Akureyri og Norðurþing
  • Guðrún Pálmadóttir s. 858 1959

Austurland og Hornafjörður
  • Sigurlaug Gísladóttir s. 858 1964

Vestmannaeyjar og Suðurland
  • Kristjana Sigmundsdóttir s. 858 2142

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum