Hoppa yfir valmynd
6. maí 2015 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Sumarstörf fyrir námsmenn auglýst til umsóknar

Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun

Vinnumálastofnun hefur auglýst laus til umsóknar 230 sumarstörf fyrir námsmenn hjá opinberum stofnunum. Störfin eru ætluð þeim sem eru 18 ára á þessu ári eða eldri og eru á milli anna eða skólastiga. Efnt hefur verið til sambærilegs átaksverkefnis um sumarstörf síðastliðin fimm sumur.

Félags- og húsnæðismálaráðherra ákvað í vor í samræmi við tillögu Vinnumálastofnunar að verja um 150 milljónum króna úr Atvinnuleysistryggingasjóði til að skapa störf fyrir námsmenn í sumar hjá opinberum stofnunum og sveitarfélögum. Ráðningartíminn er tveir mánuðir. Störfin skiptast milli opinberra stofnana og sveitarfélaga og eru 230 hjá ríkinu og 135 hjá sveitarfélögunum.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum