Hoppa yfir valmynd
4. febrúar 2002 Innviðaráðuneytið

Yfir 300 manns á fundi um samgöngumál í Vestmannaeyjum

Á fjórða hundrað manns sótti opinn fund í Höllinni í Vestmannaeyjum um samgöngumál sem samgönguráðherra boðaði til s.l. föstudag.

Yfirskrift fundarins var "samgöngur við Vestmannaeyjar á nýrri öld".
Á fundinum fór ráðherra yfir þá málaflokka sem heyra undir hans ráðuneyti, ferðamál, fjarskiptamál, flugmál, hafna- og siglingamál og vegamál. Þá fjallaði hann nánar um verkefni og framkvæmdir á vegum samgönguráðuneytisins og stofnana þess sem snerta Vestmannaeyinga beint.
Þar bar að sjálfsögðu hæst málefni Herjólfs, sem hafa verið mikið til umræðu í Vestmannaeyjum vegna væntanlegrar slipptöku skipsins. Ráðherra sagði umræðuna um Herjólf hafa farið um víðan völl að undanförnu, en frá sínum bæjardyrum væri málið einfalt - ekki kæmi til greina af sinnu hálfu, og hefði aldrei gert, annað en að afleysingaskip Herjólfs gæti á fyllilega boðlegan hátt sinnt þeirri þjónustu sem um er að ræða.
Fjöldi fyrirspurna kom fram á fundinum, sem einkum lutu að ferðaþjónustu í Eyjum, flugi og þjónustu við Herjólf. Var borin fram sérstök ósk af heimamönnum að ferðum Herjólfs yrði fjölgað frá því sem nú er. "Tvær ferðir á dag, alla daga vikunnar" var algeng ósk fyrirspyrjenda.
Eins og fyrr segir var fundurinn mjög vel sóttur, eða á fjórða hundrað manns. Nokkur undiralda virtist vera á fundinum í upphafi, en hann fór vel fram í alla staði, var málefnalegur og samgönguráðherra svaraði fjölda spurninga.
Á fundinum boðaði ráðherra að hann hyggðist setja á laggirnar nefnd í samvinnu við heimamenn er fylgdist með rannsóknum á Bakkafjöru varðandi mögulega hafnargerð, hann lýsti áformum um nýja flugstöð á Bakkaflugvelli og síðast en ekki síst, þá lauk ráðherra fundinum með þeim orðum að ferðum Herjólfs yrði fjölgað. Hvernig það verður gert verður undirbúið í samvinnu Vegagerðinnar og heimamanna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum