Hoppa yfir valmynd
14. júlí 2022 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 266/2022 Úrskurður

 KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 14. júlí 2022 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 266/2022

í stjórnsýslumáli nr. KNU22050046

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 24. maí 2022 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Venesúela og Kólumbíu (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. maí 2022, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að vera veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verðið veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.        Málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi hinn 17. febrúar 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. hinn 5. apríl 2022 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 2. maí 2022, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála hinn 24. maí 2022. Kærunefnd barst greinargerð kæranda hinn 7. júní 2022. Í greinargerð óskaði kærandi eftir því að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni máls síns. Í ljósi frásagnar kæranda og skýrslna um heimaríki hans taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa honum kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu, Venesúela, vegna almenns ástands í landinu. Kærandi sé jafnframt ríkisborgari Kólumbíu.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda til kærunefndar kemur fram að kærandi sé fæddur og uppalinn í [...] í Venesúela. Hann hafi búið á árunum 1994 til 2000 í Kólumbíu og frá þeim tíma farið fram og til baka milli landanna til að leita að stöðugleika. Hann hafi farið til Kólumbíu árið 2011, 2016 og 2017. Hann hafi búið í Kólumbíu frá 2017 til 2021. Kærandi sé Vottur Jehóva og hafi tekið þátt í mörgum mótmælum gegn Hugo Chávez sem barn. Kærandi hafi greint frá því að líkamleg heilsa hans sé góð en að andleg heilsa sé ekki góð. Hann sé kvíðinn og hafi áhyggjur af fjölskyldu sinni. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi flúið vegna þess að hann og fjölskylda hans hafi sætt fordómum og mikilli mismunun í Kólumbíu vegna uppruna þeirra. Þegar hann hafi yfirgefið Kólumbíu árið 2011 hafi ástandið verið breytt þar í landi. Andúð og fordómar gagnvart Venesúelamönnum hafi rokið upp. Fjölskylda hans eigi erfitt með að fá húsnæði til að leigja, mörg fyrirtæki ráði einungis fólk frá Kólumbíu og Covid-faraldurinn hafi leitt til þess að kærandi hafi átt í erfiðleikum með að finna starf. Hann hafi ekki getað komið fimm ára syni sínum í skóla þar sem biðlistar væru langir og kona hans hafi ekki getað fengið vinnu. Fjölskyldan hafi flutt mikið á milli borga í Kólumbíu en aldrei tekist að koma sér vel fyrir. Þá hafi kærandi greint frá því að aðgengi að heilbrigðisþjónustu væri afar misjafnt og hann og kona hans hafi leitað eftir heilbrigðisþjónustu með son sinn í tvígang vegna flensu og útbrota og ekki fengið aðstoð. Þá hafi þjónusta fyrir einstaklinga frá Venesúela varðandi bólusetningar tekið lengri tíma. Þá væri lögreglan spillt, hann hafi til að mynda verið krafinn um peningagreiðslu af lögreglu vegna uppruna síns. Þá hafi lögregla í eitt skipti er hann leitaði til hennar til að leggja fram kæru engan áhuga sýnt á að taka á móti kærunni. Kærandi telji að þetta sé ein birtingarmynd þeirrar mismununar sem Venesúelamenn verði fyrir. Þá hafi kærandi greint frá því að honum hafi verið byrlað ólyfjan í leigubíl í nóvember á síðasta ári, honum hótað og nánast öllu stolið af honum, meðal annars venesúelsku vegabréfi hans. Þá geti kærandi ekki framfleytt sér og fjölskyldu sinni í Kólumbíu og óttist um líf sitt og fjölskyldu sinnar.

Í greinargerð er ekki fjallað um aðstæður í Venesúela þar sem Útlendingastofnun hafi eingöngu fjallað um aðstæður kæranda í Kólumbíu. Kærandi vísar þó til þess að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi ítrekað biðlað til aðildarríkja að veita einstaklingum frá Venesúela vernd vegna ástandsins þar í landi. Í greinargerð er vísað til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar varðandi landaupplýsingar um Kólumbíu auk nýjustu skýrslna um ástand mála í þar í landi. Kærandi gerir athugasemd við staðhæfingu Útlendingastofnunar um að borgaraleg réttindi séu alla jafna virt í Kólumbíu. Í nýjustu skýrslu Freedom House segi að þrátt fyrir að réttur borgara í Kólumbíu til að mótmæla njóti stjórnarskrárbundinnar verndar sé hann með öllu hundsaður. Árið 2021 hafi öryggissveitir landsins, ásamt ríkislögreglunni, beitt ríkisborgara sem voru þátttakendur í friðsamlegum mótmælum alvarlegu ofbeldi. Mótmæli þúsunda ríkisborgara hafi átt sér stað í apríl til júní árið 2021. Lögreglan hafi brugðist við með því að grípa til óhóflegrar valdbeitingar, beitingu skotvopna og handahófskenndra handtaka. Jafnframt hafi Útlendingastofnun komist að þeirri niðurstöðu að yfirvöld hafi lagt mikið í að auka vernd þeirra sem hafi orðið fyrir barðinu á glæpahópum. Ný skýrsla frá Human Rights Watch sýni á hinn bóginn fram á að ekki sé hægt að fullyrða um virkni þessara aðgerða stjórnvalda. Þá hafi Útlendingastofnun vísað til þess að mannréttindabrotum hafi fækkað í landinu á grundvelli heimildar frá 2019. Skýrsla frá árinu 2022 beri hins vegar ekki með sér að sú sé raunin, þvert á móti hafi ofbeldi aukist almennt árið 2021 og morðtíðni hækkað um 9,5%. Ástæðuna megi rekja til misréttis og ófullnægjandi viðveru stjórnvalda. Af framangreindu virtu telji kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni skv. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kærandi byggir aðalkröfu sína um að honum verði veitt alþjóðleg vernd samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við að vera ofsóttur í Kólumbíu og að hann tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi þar sem hann sé Venesúelamaður. Þá myndi brotaþolar glæpatengdra gengja sérstakan þjóðfélagshóp. Líta megi á aðstöðu kæranda þeim augum að aðild hans að þjóðfélagshópi sé að minnsta kosti tvíþætt. Þeir þættir spili saman við fyrri ofsóknir og kærandi hafi því ástæðuríkan ótta við ofsóknir, bæði í Venesúela og í Kólumbíu. Sú staðreynd að kærandi hafi ekki lögreglugögn undir höndum eða hafi ekki leitað til lögreglu beri ekki að meta honum í óhag, heldur sé það miklu frekar lýsandi fyrir aðstæður hans, en kærandi hafi greint frá því í efnisviðtali að lögreglan bæði í Kólumbíu og Venesúela sé gjörspillt. Af málsatvikum og landaupplýsingum frá heimaríki kæranda þyki ljóst að hann hafi engan raunhæfan möguleika á vernd yfirvalda. Þá gerir kærandi athugasemd við að Útlendingastofnun hafi litið framhjá frásögn kæranda og málsástæðum hans í tengslum við ofsóknir af hálfu glæpagengja. Kærandi telji því að ákvörðunin sé ekki í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga sem kveði á um rannsóknarskyldu stjórnvalda.

Verði kærunefnd ekki við aðalkröfu kæranda er þess krafist til vara að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi vegna slæms öryggisástands, félagslegs og efnahagslegs ástands í Kólumbíu og Venesúela. Kærandi ítrekar umfjöllun um aðstæður í Kólumbíu og aðstæður í máli kæranda. Alvarlegustu mannréttindabrot í landinu séu m.a. morð framin í skjóli refsileysis, pyndingar, víðtæk spilling og ofbeldi af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa gagnvart óbreyttum borgurum. Eins og fram hafi komið í viðtali kæranda sé auðvelt að greina uppruna hans út frá hreimnum hans og auk þess tilgreini kólumbísk skilríki þjóðerni hans. Vegna þjóðernis megi hann búast við skertu aðgengi að heilbrigðis-, félags- , atvinnu-, húsnæðis-, og menntakerfinu. Auk þess eigi hann á hættu að sæta frekari mismunun og ofbeldi en hann hafi þegar mátt þola, bæði í Venesúela og í Kólumbíu. Ljóst sé að kærandi uppfylli öll skilyrði til þess að hljóta viðbótarvernd þar sem hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð hvort sem litið sé til Venesúela eða Kólumbíu. Þá hafi kærandi greint frá því að hann hafi búið í sex öruggustu borgum í Kólumbíu en honum og fjölskyldu hans hafi hvergi tekist að koma sér fyrir. Með vísan til áður rakinna landaupplýsinga og aukinnar spennu hjá skæruliða- og glæpahópum sé enginn staður í Kólumbíu þar sem um varanlega eða stöðuga lausn væri að ræða. Flutningur innanlands sé því ekki möguleiki fyrir kæranda. Taka verði mið af stöðu mannréttinda í landinu og persónulegum aðstæðum kæranda, fjölskylduaðstæðum hans og tengslaneti.

Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til einstaklingsbundinnar stöðu hans sem fjölskyldufaðir tveggja ungra barna og til mannréttindabrota kólumbískra og venesúelskra stjórnvalda. Ljóst sé að ómögulegt sé fyrir kæranda að lifa öruggu og eðlilegu lífi fjarri ofbeldi hvort sem litið sé til Venesúela eða Kólumbíu. Líta verði til aðstæðna kæranda með heildstæðum hætti. Líta verði til afleiðinga ofbeldis sem hann hafi þegar orðið fyrir og þeirra áfalla og þess stanslausa ótta sem hann búi við og hafi haft áhrif á andlega heilsu hans. Að mati kæranda hafi ekki verið litið sérstaklega til aðstæðna hans með tilliti til möguleika hans á vernd samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því sé ákvörðun Útlendingastofnunar ekki í samræmi við 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi hafi ríka þörf á vernd og með hliðsjón af einstaklingsbundnum aðstæðum hans og erfiðum félagslegum aðstæðum séu skilyrði 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga uppfyllt og því beri að veita honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þá vísar kærandi til þess að með því að senda hann til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingum, sbr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telji kærandi að slík ákvörðun muni brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kólumbísku vegabréfi og útrunnu venesúelsku vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé venesúelskur og kólumbískur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2021/2022 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post-FARC-EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
  • Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 19. apríl 2022);
  • Colombia 2020 Crime and Safety Report (US Department of State, Bureau of Diplomatic Security, 13. mars 2020);
  • Colombia: Events of 2021 (Human Rights Watch, 2022);
  • Colombia: Egregious Police Abuses Against Protesters: Police Reform Urgently Needed to Prevent Future Violations (Human Rights Watch, 9. júní 2021);
  • Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (Internaitonal Crisis Group, 19. október 2017);
  • Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
  • Foreign travel advice: Colombia (Gov.uk, síðast uppfært 22. júní 2022);
  • Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
  • Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and State Protection (mars, 2020);
  • Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
  • Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
  • Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
  • Crime and security in Medellin (Columbia reports, 9. mars 2021);
  • Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communites (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
  • Mental Health ATLAS 2017. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 2018);
  • Situation of human rights in Colombia. Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights (UN Human Rights Council, 10. febrúar 2021);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);

  • Supporting Colombian Host Communities and Venezuelan Migrants During the COVID-19 Pandemic (The World Bank, 31. október 2021);
  • The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 7. júní 2022);
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 30. mars 2022);
  • Freedom in the World 2022 - Colombia (Freedom House, 2022);
  • World Report 2020 – Events of 2019 (Human Rights Watch, 14. janúar 2020);
  • World Report 2021 – Events of 2020 (Human Rights Watch, 13. janúar 2021);
  • World Report 2022 – Events of 2021 (Human Rights Watch, 2022);
  • Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
  • Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com) og
  • Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).

Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast 79% íbúa kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaralega og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, víðtæk spilling, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu og ofbeldi gegn LGBTI einstaklingum. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni komi fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi innleitt lög um að glæpavæða opinbera spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Mannréttindabrot af hendi lögreglunnar í mótmælum árið 2021 hafi leitt til kerfisbreytinga og í desember 2021 hafi þingið samþykkt umbótapakka til að styrkja agaviðurlög vegna brota lögreglumanna í starfi. Hinn 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro hafi verið fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Hann hafi heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti.

Í skýrslu samtakanna Freedom House frá 2022 kemur t.a.m. fram að spillingar gæti víða í kólumbísku stjórnkerfi. Á síðustu árum hafi komið upp á yfirborðið hneykslismál tengd ýmsum alríkisstofnunum sem hafi verið rannsökuð og hafi sum brot háttsettra embættismanna endað með sakfellingu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir. Í framangreindri skýrslu Freedom House kemur fram að friðarsamkomulagið sem undirritað var árið 2016 milli ríkisstjórnarinnar og FARC skæruliðahópsins hafi haldist óbreytt á árinu. En tafir á framkvæmd samkomulagsins og afvopnun fyrrverandi uppreisnarmanna hafi vakið áhyggjur eftirlitsaðila. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust á slíkri vernd takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð aðgerðarsinna verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.

Af framangreindum heimildum má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Narino, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionaty Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Í skýrslu Human Rights Watch fyrir árið 2021 kemur fram að almennir borgarar hafi verið beittir misnotkun og ofbeldi af hendi framangreindra skæruliðahópa og glæpahópa. Meðlimir mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólk, leiðtogar frumbyggja og aðrir aðgerðarsinnar hafi staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi og líflátshótunum. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau. Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 13. mars 2020 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir ofangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengdi umboð verkefnis sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu til 2022. Nefndinni var gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu. Þar með talið pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Þá framlengdi stjórnlagadómstóllinn umboð sannleiks- og sáttanefndarinnar til 27. júní 2022.

Í skýrslu Human Rights Watch frá 2021 kemur fram að kólumbíska ríkislögreglan hafi í nóvember árið 2021 ráðist að mótmælendum í landinu, sem hafi mótmælt breytingum á skattalöggjöf og morðum á mannréttindaaðgerðarsinnum. Dregið hafi úr mótmælum í kjölfar Covid-19 faraldursins en hinn 28. apríl 2021 hafi þúsundir tekið þátt í mótmælum vegna fyrirhugaðra breytinga á skattalöggjöf. Stjórnvöld hafi dregið umræddar tillögur til baka en mótmæli hafi haldið áfram og tengst óánægju mótmælenda, s.s. vegna atvinnuleysis, versnandi efnahagsástandi í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins, ójöfnuðar, glæpatíðni o.fl. Í skýrslu sinni greinir Amnesty International frá ofbeldi og alvarlegum mannréttindabrotum gagnvart mótmælendum af hendi öryggissveita og vopnaðra aðila. Frá því að mótmæli hafi hafist hafi kólumbíska lögreglan og öryggissveitir beitt mótmælendur ofbeldi þrátt fyrir að mótmælin hafi flest farið fram með friðsamlegum hætti. Lögreglan hafi brugðist við með því að grípa til óhóflegrar valdbeitingar, beitingu skotvopna og handahófskenndra handtaka. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafi fordæmt alvarleg ofbeldisbrot í landinu.

Heimsfaraldur Covid-19 og aðgerðir til að hafa stjórn á honum hafi haft hrikaleg áhrif á fátækt og ójöfnuð í Kólumbíu. Tæplega hálf milljón manna hafi fallið í fátækt árið 2020 og fjöldi heimila með börn sem ekki sóttu skóla hækka um tæp 14%. Þá hafi vanefndum samningsaðila á friðarsamningnum sem undirritaður hafi verið árið 2016 og stigvaxandi ofbeldi glæpahópa og lögregluyfirvalda verið mótmælt. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 að um 8 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Þá hafi hætta af ólöglegum vopnuðum hópum í landinu valdið fólksflutningum, bæði í þéttbýli sem og í dreifbýli. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.

Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu, 14,3% árið 2021 og hafði aukist verulega frá árinu 2019 en minnkað frá árinu 2020. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) ber ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni frá árinu 2018, hefur frá árinu 2013 verið í gildi sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu, slík heilbrigðisþjónusta sé að mestu tryggð með sjúkratryggingakerfi landsins og meirihluti fólks sem eigi við andleg vandamál að stríða þurfi ekki að greiða fyrir slíka þjónustu.

Í framangreindri skýrslu Freedom House kemur fram að um 1.7 milljónir Venesúelabúa hafi flust til Kólumbíu á undanförnum árum. Stjórnvöld hafi veitt atvinnuleyfi og aðgengi að þjónustu og úrræðum. Umburðarlyndi hafi minnkað í þeirra garð í kjölfar efnahagslegra erfiðleika í landinu vegna Covid 19-faraldursins. Hinn 8. febrúar 2021 hafi stjórnvöld tilkynnt um veitingu tímabundinnar verndar (e. Temporary Protective Status (TPS)) en mismunun og takmarkanir á aðgengi að þjónustu, m.a. bólusetninga vegna Covid-19, séu enn vandamál. TPS veiti Venesúelabúum formlega aðgengi að atvinnu, heilbrigðisþjónustu og menntun og auðveldi aðgengi að þjónustu. Í október 2021 hafi 1.4 milljón Venesúelabúar verið skráðir í TPS. Í frétt á vefsvæði Alþjóðabankans (e. The World Bank) segir að þrátt fyrir að venesúelskir ríkisborgarar verði oft fyrir fordómum og mismunun í Kólumbíu þá sýni meirihluti íbúa Kólumbíu Venesúelabúum skilning og telji rétt að Kólumbía taki á móti þeim. Þá hafi kólumbísk stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðlegar stofnanir, unnið að því að draga úr mannúðarvanda sem venesúelskir ríkisborgarar upplifi, sem og að bæta félagslegar aðstæður þeirra þannig að þeir eigi auðveldara með að aðlagast kólumbíska samfélaginu. Þrátt fyrir þessar aðferðir þá sé hópurinn félagslega- og efnahagslega jaðarsettur í landinu. Kólumbísk stjórnvöld telji að útlendingaandúð sé ekki útbreidd meðal almennings þrátt fyrir að slík orðræða geti átt sér stað. Þá hafi slík orðræða verið fordæmd af háttsettum embættismönnum í landinu. Í skýrslu samtakanna Refugees International kemur fram að heimsfaraldur Covid-19 hafi lagst sérstaklega þungt á ríkisborgara Venesúela í Kólumbíu þrátt fyrir einlægan vilja kólumbískra stjórnvalda til að tryggja þeim aðstoð og heilbrigðisþjónustu. Tugir þúsunda einstaklinga hafi neyðst til að yfirgefa Kólumbíu vegna atvinnumissis, fjárskorts, skorts á húsnæði, mat o.fl. og snúið aftur til Venesúela þrátt fyrir slæmt ástand þar í landi.

Medellín er næststærsta borg Kólumbíu. Borgin var í eina tíð þekkt fyrir að vera miðstöð eiturlyfjaviðskipta. Í ferðaleiðbeiningum breska innanríkisráðuneytisins, sem voru uppfærðar 22. júní 2022, er fjallað ítarlega um þau svæði í Kólumbíu sem teljast hættuleg og ráðlagt er gegn því að ferðast til. Medellín er staðsett á svæði sem telst tiltölulega öruggt fyrir ferðalög. Í ferðaleiðbeiningunum kemur fram að þrátt fyrir umbætur í öryggismálum sé glæpatíðni enn há í Kólumbíu, ólöglegir glæpahópar taki þátt í fíkniefnaviðskiptum og alvarlegum glæpum, þar á meðal mannránum, peningaþvætti og fleiri. Götuglæpir (e. street crime) séu vandamál í stórum borgum, þ. á m. í Bogotá, Medellín, og Cali og mikilvægt sé að gæta varúðar á ákveðnum svæðum í borgunum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Þar sem kærandi er ríkisborgari Kólumbíu, telur kærunefnd, eins og aðstæðum er háttað í þessu máli, að aðeins sé þörf á að fjalla um aðstæður kæranda þar í landi, sbr. m.a. 2. mgr. A-liðar 1. gr. flóttamannasamningsins.

Kærandi ber fyrir sig að ástæður flótta hans frá heimaríki megi einkum rekja til hættu vegna almenns ástands í Venesúela og Kólumbíu. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi orðið fyrir ofbeldi, verið hótað og sætt mismunun bæði í Venesúela og Kólumbíu. Kærandi hafi flúið Venesúela af margþættum ástæðum en að ástandið hafi verið slæmt og erfitt að framfleyta fjölskyldu sinni þar, m.a. vegna matarskorts, lokana í skólum og lyfjaskorts. Í Venesúela hafi hann verið rændur níu sinnum og honum hótað með hníf og byssu. Kærandi hafi ákveðið að fara til Kólumbíu þegar eiginkona hans hafi verið ólétt af yngra barninu þeirra. Í nóvember 2021 hafi kæranda verið byrlað ólyfjan og honum hótað í leigubíl. Hann hafi verið hræddur um líf sitt og fjölskyldu sinnar. Hann og eiginkona hans hafi orðið fyrir mismunun og fordómum í Kólumbíu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að venesúelskir ríkisborgarar verði fyrir fordómum og mismunun í Kólumbíu og að fjöldi venesúelskra flóttamanna í landinu geri aðgang að aðstoð og stuðningi erfiðari. Frásögn kæranda fær vissa stoð í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað. Líkt og fram hefur komið eru yfir 1,7 milljón Venesúelabúa sem hafa flúið yfir til Kólumbíu á undanförnum misserum. Því fylgi ótti meðal margra íbúa Kólumbíu sem telji að stjórnvöld hafi ekki nægilegt fjármagn til að taka á móti Venesúelabúum og að þeir muni taka störf frá kólumbískum íbúum. Þá hafi Covid-19 heimsfaraldurinn aukið enn á spennu og erfiða stöðu venesúelskra flóttamanna í Kólumbíu. Stjórnvöld hafi hins vegar sýnt einlægan vilja til að taka vel á móti Venesúelabúum og hjálpa þeim við að aðlagast samfélaginu. Þrátt fyrir að Venesúelabúar geti orðið fyrir fordómum og mismunun í Kólumbíu er það mat kærunefndar, með tilliti til framangreindra gagna, að það nái ekki því alvarleikastigi sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.  

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að hann óttist ofsóknir af hálfu kólumbískra yfirvalda sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærandi eigi þær á hættu. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Kólumbíu bera m.a. með sér að ítök glæpahópa séu á sumum svæðum sterk og löggæsla veik. Þó svo að gögn beri með sér að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla sé að nokkru leyti ábótavant og spilling sé í landinu, er það mat kærunefndar, að ekki verði ráðið að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda vernd, meðal annars með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir.

Kærunefnd telur gögn málsins að öðru leyti ekki benda til þess að kærandi eigi á hættu ofsóknir af því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um af öðrum ástæðum er koma fram í 1. mgr. 37. gr. laganna.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997). 

Kærandi vísar til þess að hann sé í hættu vegna ótryggs ástands í heimaríkjum. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Af virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í Medellín, hvar kærandi kvaðst síðast hafa verið búsettur í Kólumbíu og fjölskylda hans dvelur, er það þó mat kærunefndar að hann eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa aftur til Kólumbíu. Að jafnaði hafi kólumbískar öryggissveitir rannsakað, ákært og refsað opinberum starfsmönnum sem hafi gerst sekir að mannréttindabrotum. Þá eru lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg. 

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur greint frá erfiðum aðstæðum í heimaríki, m.a. vegna starfsemi glæpahópa og að yfirvöld geti ekki veitt honum fullnægjandi vernd vegna uppruna hans og fjölskyldu hans frá Venesúela. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi yfirgefið landið vegna ástandsins í Kólumbíu, erfiðra aðstæðna vegna uppruna hans og erfiðleika við að framfleyta sér og fjölskyldu sinni. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi einnig til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdunum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geti tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í heimaríki kæranda telur kærunefnd að almennar aðstæður hans séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra aðstæðna.

Kærandi byggir á því að félagslegar aðstæður hans í heimaríki verði bágbornar. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eigi á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Kærandi er háskólamenntaður og hefur greint frá því að hann hafi stundað atvinnu í [...] í Kólumbíu fyrir Covid-19 faraldurinn en hafi átt erfitt með að finna starf fyrir komu sína hingað til lands. Kærandi kvaðst eiga erfitt með að sjá fjölskyldu sinni farborða. Hann hafi unnið hörðum höndum til að koma undir sig fótunum í Kólumbíu en óttist að það verði erfitt með börn og eiginkonu. Hann hefur greint frá því að hafa unnið ýmis störf, við uppvask, sem þjónn og sem kokkur. Kærandi er hraustur maður á miðjum aldri og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sér og fjölskyldu sinni. Með vísan til fyrri umfjöllunar er það mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli félagslegra aðstæðna.

Kærunefnd hefur jafnframt litið til þeirra tímabundnu erfiðleika sem Kólumbía kann að þurfa að glíma við vegna Covid-19 faraldursins. Kærunefnd telur þá erfiðleika ekki vera þess eðlis að þeir leiði til þess, einir sér eða í samhengi við önnur gögn málsins, að heimilt sé veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þá hefur ekki komið annað fram í viðtölum við kæranda en að hann sé við góða heilsu. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir við málsmeðferð Útlendingastofnunar

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir í greinargerð sinni. Má af greinargerð ráða að kærandi telji að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Að mati kæranda hafi aðstæður hans í Kólumbíu ekki verið rannsakaðar með fullnægjandi hætti, auk þess sem skýrslur og heimildir um Kólumbíu sýni að lögreglan geti ekki veitt honum vernd.

Það er mat kærunefndar að ekkert hafi komið fram í málinu sem bendi til þess að skort hafi á að nauðsynlegar upplýsingar lægju fyrir um ástandið í heimaríki kæranda, við ákvörðunartöku hjá Útlendingastofnun. Í því sambandi er tekið fram að kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem aflað var við rekstur málsins, svo og skýrslur opinberra stofnana, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 17. febrúar 2022 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga og þegar litið er til ferðatakmarkana vegna Covid-19 faraldursins teljast 30 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Í ljósi Covid-19 faraldursins er athygli kæranda vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu. 

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 30 days to leave the country voluntarily.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Sindri M. Stephensen                                                                     Þorbjörg I. Jónsdóttir

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum