Hoppa yfir valmynd
26. júlí 2010 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra sækir ríkjaráðstefnu ESB og Íslands í Brussel

Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, heldur í dag til Brussel þar sem hann tekur á morgun þátt í ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins, sem markar upphaf aðildarviðræðna Íslands við sambandið.  Ráðstefnan verður haldin í framhaldi af fundi utanríkisráðherra ESB.

Ráðstefnuna sitja auk Íslands, utanríkisráðherra Belgíu, Steven Vanackere, en Belgar fara með formennsku ESB á síðari hluti þessa árs, Stefan Fule, stækkunarstjóri Evrópusambandsins og fulltrúar aðildarríkja ESB. Utanríkisráðherra mun ávarpa ráðstefnuna þar sem hann gerir grein fyrir umsókn Íslands, helstu áherslumálum og hagsmunum Íslands í aðildarviðræðunum.

Í aðdraganda ráðstefnunnar hefur utanríkisráðherra átt samráð m.a. við utanríkismálanefnd Alþingis og ráðherranefnd um Evrópumál . Auk ráðherra munu fulltrúar samninganefndar Íslands sækja ríkjaráðstefnuna.

Hægt verður að fylgjast með útsendingu frá blaðamannafundi Össurar, Vanackere og Fule sem áætlaður er kl. 10:00 að íslenskum tíma, þriðjudaginn 27. júlí á: http://video.consilium.europa.eu

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum