Hoppa yfir valmynd
20. desember 2012 Innviðaráðuneytið

Uppgjör framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga

Innanríkisráðherra  hefur samþykkt tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðun og uppgjör eftirfarandi framlaga úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2012:

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts  2012

Farið hefur fram endurskoðun á úthlutun framlaga til sveitarfélaga á grundvelli reglugerðar nr. 80/2001 vegna jöfnunar á tekjutapi sveitarfélaga í kjölfar lækkunar tekna af fasteignaskatti á árinu 2012.  Endurskoðunin tekur mið af hækkun ráðstöfunarfjármagns sjóðsins til greiðslu framlaganna.

Heildarúthlutun framlaganna árinu  nemur um 2.956,0 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð um 25,5 m.kr.  koma til greiðslu í dag, 20. desember.

Tekjujöfnunarframlög 2012

Farið hefur fram endurskoðun á úthlutun tekjujöfnunarframlaga fyrir árið 2012, skv. 12. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010.  Við endurskoðunina var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga  vegna tekna á árinu 2011.

Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur  um 1.254,3 m.kr. Um 3/4 hlutar framlaganna  komu til greiðslu í  október. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð  um 318,4 m.kr.  koma til greiðslu á morgun, 21. desember.

Útgjaldajöfnunarframlög 2012

Farið hefur fram endurskoðun á úthlutun útgjaldajöfnunarframlaga fyrir árið 2012, skv.  13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, nr. 960/2010. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi og íbúafjölda í sveitarfélögum 1. desember 2011.

Heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga í ár nemur 5.000,0 m.kr. Þar af eru 750,0 m.kr. vegna skólaaksturs úr dreifbýli. Til greiðslu á árinu hafa komið um 3.724,5 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna koma til greiðslu sem hér segir: Á morgun, 21. desember, koma til greiðslu um 1.100,5 m.kr. Í janúar allt að 175,0 m.kr. vegna íþyngjandi kostnaðar af skólaakstri ú dreifbýli á árinu 2012 umfram tekjur

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum