Hoppa yfir valmynd
30. ágúst 2018 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisráðherra skrifar: „Verkefnum fjölgar – úr vörn í sókn“

Þetta er yfirskrift blaðagreinar Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra í dag þar sem hún fjallar um mikilvæg verkefni á sviði heilbrigðisþjónustu, stefnumótun fyrir heilbrigðiskerfið og forgangsröðun fjármuna. Í greininni kemur fram að ráðherra muni boða til heilbrigðisþings í nóvember þar sem þessi mál verða til umræðu.

Grein ráðherra er eftirfarandi:

Svandís Svavarsdóttir,,Þörf fyrir dagdvalarrými hefur  aukist á undanförnum árum en eftir efnahagshrunið hefurþeim því  miður ekki fjölgað nægilega hratt. Ástandið er enn eitt dæmið um afleiðingar hrunsins á heilbrigðiskerfið, þar sem dregið var úr fjármagni sem rann til innviðaog uppbygging í mörgum málaflokkum var stöðvuð. Nú þegar efnahagsástandið hefur batnað rísa réttmætar kröfur um endurbætur á nánast öllum sviðum samfélagsins, þar á meðal á þessu sviði. Því miður er ómögulegt að ætla sér að leysa öll vandamál í einu vetfangi en viðsnúningurinn er hafinn.

Í heilbrigðisráðuneytinu er nú unnið að stefnumótun fyrir heilbrigðiskerfið. Í þeirri vinnu hefur ýmsum spurningum verið varpað fram; hvernig heilbrigðisþjónustu viljum við veita, hvernig getum við tryggt að heilbrigðisþjónusta sé veitt á viðeigandi þjónustustigi og hvernig greiðum við fyrir hana, hvernig aukum við þátttöku sjúklinganna sjálfra í veitingu heilbrigðisþjónustu, hvaða gæðakröfur eru gerðar, hvernig stöndum við að menntun heilbrigðisstarfsfólks og hvernig tryggjum við nægilegan mannafla í heilbrigðiskerfinu, hvernig innleiðum við nýja tækni og ný lyf og hvernig stöndum við að vísindastarfi og nýsköpun?

Öllum þessum spurningum og fleirum þarf að svara til þess að við getum forgangsraðað því fjármagni sem rennur til heilbrigðismála. Markmiðið er að gera tilraun til þessað svara þessum spurningum í haust, í samvinnu við heilbrigðisstofnanir og aðrar stofnanir heilbrigðisráðuneytisins, auk þess sem frekari umræða um þær mun fara fram á heilbrigðisþingi sem ég mun boða til í nóvember.

Verkefni samfélagsins alls.

Umræðan undanfarið um skort á dagvistunarúrræðum fyrir heilabilaða endurspeglar hluta af aukinni þörf fyrir fjölbreytta þjónustu fyrir aldraða og ekki síst þá sem glíma við heilabilum. Þjónusta við þann hóp er verkefni samfélagsins alls og með framkvæmd þeirrar þjónustu fer heilbrigðiskerfið – þegar um er að ræða heilbrigðisþjónustu, félagsmálayfirvöld og sveitarfélögin þegar um er að ræða búsetu, t.a.m. sérstök búsetuúrræði og þegar um er að ræða dægradvöl og tómstundir. Stundum skarast þessi svið auk þess sem ólíkt kann að vera milli sveitarfélaga hvaða þjónusta er veitt og hvernig samstarfi við ríkið eða fyrirtæki í velferðarþjónustu er háttað í hverju tilviki.

Nú er það svo að ríkið greiðir þeim daggjöld sem veita öldruðum hjúkrun eða aðra umönnun, hvortsem það er á hjúkrunarheimilum eða í dagvistun, en sú þjónusta er ýmist veitt af sveitarfélögum eða af einkaaðilum. Þessi mál þarf aðskoða vel með það að markmiði að tryggja að öllum bjóðist viðeigandiþjónusta.

Samtímis því að unnið er að stefnumótun í heilbrigðiskerfinu hefur fjölmargt verið gert til þessað bæta úr augljósum veikleikum í heilbrigðisþjónustunni. Greiðslukerfi heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið breytt, geðheilbrigðisstefna hefur verið fullfjármögnuð, reglugerðarbreytingar hafa verið gerðar sem takmarka aðgengi að ávana- og fíknilyfjum og innflutning einstaklinga á þessum lyfjum og unnið er að aðgerðum sem auka fræðslu ungs fólks um þessi lyfog hvernig meðferðarúrræðum fyrir ungt fólk í fíknivanda verði best fyrirkomið.

Stórsókn kynnt

Stórsókn um uppbyggingu hjúkrhjúkrunarrýma hefur verið kynnt, skóflustunga að meðferðarkjarna Landspítalans við Hringbraut verður tekin bráðlega og stjórn spítalans hefur í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið hafið undirbúning að því að auka dag- og göngudeildarstarfsemi spítalans, sem mun bæta aðgengi að þjónustu sérgreinalækna fyrir alla landsmenn. Síðast en ekki síst hefur greiðsluþátttaka sjúklinga verið endurskoðuð og kostnaður þeirra sem þurfa á mestri heilbrigðisþjónustu að halda hefur verið lækkaður verulega.

Þolinmæði er ekki þjóðareinkenni Íslendinga en takist okkur að hrinda þeim verkefnum í framkvæmd sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur eru allar líkur á því að Íslendingar muni áfram búa við heilbrigðiskerfi í fremstu röð."

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum