Hoppa yfir valmynd
17. september 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Viðurkenningar veittar í tengslum við Dag íslenskrar náttúru

Frá verðlaunaafhendingunni - mynd

Tómas Guðbjartsson og Ólafur Már Björnsson hlutu í dag fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og Sveinn Runólfsson fékk Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Verðlaunin voru veitt í tengslum við Dag íslenskrar náttúru, sem var í gær.

Að venju valdi dómnefnd skipuð fagfólki úr fjölmiðlum handhafa fjölmiðlaverðlaunanna en í henni sátu í ár Ragna Sara Jónsdóttir formaður, Jón Kaldal og Valgerður Anna Jóhannsdóttir.

Var það niðurstaða dómnefndar að veita þeim Tómasi og Ólafi Má fjölmiðlaverðlaunin fyrir myndefni, upplýsingar og greinaskrif um íslenska náttúru á síðustu tólf mánuðum. Segir í rökstuðningi nefndarinnar að þeir félagar hafi heimsótt fjölmarga staði og sótt þangað nýtt efni, bæði ljósmyndir og myndskeið og nýtt sér samfélagsmiðla og aðra fjölmiðla til að koma þessu efni á framfæri. „Tómas og Ólafur Már hafa verið óþreytandi við að halda íslenskri náttúru á lofti í fjölmiðlum, hefðbundnum sem óhefðbundum, á síðastliðnu ári og er það samdóma álit dómnefndar að með því hafi þeir haft bein áhrif á að lítt þekktar náttúruperlur, svo sem fossaröð á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði Hvalárvirkjunar, hafa komist í almenna umræðu. Umfjöllun þeirra er enn fremur lýsandi fyrir þær breytingar sem orðið hafa á umhverfi fjölmiðla, þar sem efni kemur í auknum mæli frá almenningi fremur en sérhæfðu fréttafólki eða ljósmyndurum.“

Verðlaunagripur Fjölmiðlaverðlaunanna nefnist Jarðarberið og er eftir Finn Arnar Arnarson. Er hann í formi krækibers en á því er örlítið Ísland, rétt eins og krækiberið sé hnötturinn eða jörðin.

Sveinn Runólfsson hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti fyrir að hafa um áratuga skeið staðið í framvarðarsveit í baráttunni fyrir vernd og endurreisn vistkerfa landsins. Segir í rökstuðningi ráðherra að Sveinn hafi helgað líf sitt þeirri hugsjón sinni að græða landið og tryggja sjálfbæra nýtingu þess. „Ævistarf Sveins við vernd landkosta er afar fjölbreytt. Þegar það hófst var uppblástur og ofbeit í algleymingi og lítill skilningur á áhrifum beitar. Uppgræðslustarfið var erfitt á foksvæðunum og öllu fagnað sem gróið gat. Sveinn hefur verið óþreytandi í boðskap sínum, fræðslu og hvatningu, jafnt til stjórnvalda sem almennings. Hann hefur stuðlað að rannsóknum, fræðslu, stofnun landgræðslufélaga og fjölbreyttum samstarfsverkefnum með þátttöku bænda og almennings sem aukið hefur bæði landlæsi og afköst í landgræðslustarfinu.“

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar verðlaunahöfum öllum innilega til hamingju.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum