Hoppa yfir valmynd
21. desember 2015 Utanríkisráðuneytið

Endurkjörin varaforseti Feneyjanefndar

Ný stjórn Feneyjanefndarinnar - mynd

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir var endurkjörin varaforseti nefndar Evrópuráðsins um lýðræði með lögum, betur þekkt sem Feneyjanefndin, hinn 20. desember s.l. og var hún sú eina af þremur varaforsetum kjörnum í síðustu kosningum 2013 sem hlaut endurkjör.

Feneyjanefndin er ráðgefandi aðili Evrópuráðsins um stjórnskipuleg málefni og gætir áhrifa hennar langt út fyrir raðir þess.. Hlutverk Feneyjanefndar er að ráðleggja aðildarríkjum og aðstoða þau við aðlaga löggjöf og stofnanir til samræmis við evrópsk og alþjóðleg viðmið á sviði lýðræðis, mannréttinda og réttarríkis. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur vitnað til álita nefndarinnar í tugum dómsmála undanfarin ár.

Aðild að Feneyjanefnd eiga 60 ríki, þar af öll 47 aðildarríki Evrópuráðsins auk Bandaríkjanna, Brasilíu, Chile, Perú, Mexíkó, Ísraels, Suður-Kóreu, Alsírs, Marokkó, Túnis og nokkurra ríkja í Mið-Asíu.

Í nefndinni eiga sæti lögfræðingar skipaðir af aðildarríkjum en sem starfa sjálfstætt og óháð þeim. Forseti nefndarinnar er Ítalinn Gianni Buquicchio sem hefur verið forseti frá 2009. Herdís var skipuð aðalfulltrúi Íslands í Feneyjanefnd 2010 og hefur gegnt störfum fyrir nefndina síðan bæði sem sérfræðingur á sviði mannréttinda og stjórnskipunar og undanfarin ár sem varaforseti í samskiptum við aðildarríkin.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum