Hoppa yfir valmynd
13. nóvember 2020 Dómsmálaráðuneytið

Nr. 384/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 13. nóvember 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 384/2020

Í stjórnsýslumáli nr. KNU20100011

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

Þann 14. október 2020 barst kærunefnd útlendingamála kæra [...], fd. [...], ríkisborgara Bandaríkjanna (hér eftir nefndur kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. september 2020, um að synja umsókn hans um langtímavegabréfsáritun á Íslandi.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var kæranda tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar þann 24. september 2020. Þann 14. október sl. barst kærunefnd kæra kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar. Er samkvæmt framansögðu ljóst að kærufresturinn, sem var til 9. október 2020, var liðinn þegar kæran barst kærunefnd.

Í kæru sinni til kærunefndar, dags. 14. október 2020, gerir kærandi grein fyrir ástæðum þess að kæran barst að liðnum kærufresti. Byggir kærandi á því að veigamiklar ástæður séu til staðar í málinu m.a. vegna sérstakra aðstæðna kæranda og sérstakra aðstæðna almennt, þ.m.t. með vísan til Covid-19 faraldursins og röskun flugsamgangna. Hin kærða ákvörðun hafi borist kæranda þann 24. september 2020. Í kjölfarið hafi samskipti átt sér stað milli umboðsaðila kæranda, foreldra hans og Útlendingastofnunar þar sem farið hafi verið fram á frekari rökstuðning fyrir forsendum ákvörðunarinnar sem og áframhaldandi leitun annarra leiða til að kærandi þyrfti ekki að fara frá Íslandi vegna hættunnar af Covid-19 faraldrinum. Telur kærandi að af því leiði að kæran sé fram komin innan kærufrests.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér geti t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Ákvörðun Útlendingastofnunar var send til kæranda með ábyrgðarpósti þann 23. september 2020 og var afhending bókuð þann 24. september 2020. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tölul. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Líkt og áður hefur komið fram barst kæra kæranda ekki til kærunefndar fyrr en þann 14. október 2020 en 15 daga kærufrestur rann út þann 9. október 2020 sé miðað við þann dag sem ákvörðunin var móttekin af kæranda. Í skýringum kæranda á því hvers vegna kæra barst of seint, dags 14. október sl., vísar kærandi til þess að í kjölfar þess að ákvörðun Útlendingastofnunar barst kæranda hafi samskipti átt sér stað milli umboðsaðila hans, foreldra og Útlendingastofnunar þar sem farið hafi verið fram á frekari rökstuðning fyrir forsendum ákvörðunarinnar sem og áframhaldandi leitun annarra leiða til að kærandi þyrfti ekki að fara frá Íslandi vegna hættunnar af Covid-19 faraldrinum. Ákvörðun Útlendingastofnunar fylgdi rökstuðningur og gátu umleitanir kæranda í því sambandi ekki leitt til þess að kærufrestur miðaðist við móttöku rökstuðnings, sbr. 3. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga. Er það mat kærunefndar að uppgefnar ástæður þess að kæra hafi borist eftir kærufrest séu ekki þess eðlis að afsakanlegt verði talið að kæra hafi ekki borist fyrr. Þá barst kæranda tölvupóstur frá Útlendingastofnun þann 5. október sl. þar sem ítrekað er við kæranda að kærufrestur til kærunefndar séu 15 dagar frá móttöku ákvörðunar Útlendingastofnunar. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að taka beri kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda og þau lagasjónarmið sem að baki liggja. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga. Ljóst er að heimaríki kæranda hefur í nokkurn tíma glímt við að ná niðurlögum Covid-19 faraldursins líkt og flest ríki heims. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu yfirvalda í Kaliforníufylki varðandi Covid-19 faraldurinn sem sóttar voru þann 5. nóvember 2020 voru fleiri greind tilfelli í fylkinu á dag í byrjun júlí sl. þegar kærandi kom hingað til lands en greinast þar í dag. Þá má lesa á vefsíðunni að smittilfelli í Kaliforníu hafi náð hámarki í lok júlí sl. og hafi smittilfellum fækkað töluvert síðan þá. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að aðstæður í heimaríki kæranda vegna Covid-19 faraldursins séu ekki með þeim hætti að ástæða sé til að taka kæruna til meðferðar hjá kærunefnd. Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni. 

 

Úrskurðarorð

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

The applicant’s appeal of the decision of the Directorate of Immigration is dismissed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Bjarnveig Eiríksdóttir                                                      Sandra Hlíf Ocares

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum