Hoppa yfir valmynd
11. september 2023 Matvælaráðuneytið

Ráðstefna um umhverfisáhrif sjávarafurða og orkuskipti í fiskveiðum

Ráðstefna um umhverfisáhrif sjávarafurða og orkuskipti í fiskveiðum - myndiStock/Yvonne Wacht

Miðvikudaginn 13. september nk. mun Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setja ráðstefnu á vegum Matís  um umhverfisáhrif sjávarafurða og orkuskipti í fiskveiðum. 

Á ráðstefnunni halda helstu sérfræðingar Norðurlanda á sviði sjálfbærni og orkuskipta í sjávarútvegi erindi þar sem fjallað verður um viðfangsefnið frá mörgum hliðum í spennandi dagskrá:

  • Fulltrúar Brims og Royal Greenland munu fjalla um hvað þeirra fyrirtæki eru að gera í umhverfismálum og orkuskiptum.
  • Dr. Friederike Ziegler frá RISE í Svíþjóð fjallar um hvernig Evrópusambandið hyggst leggja áherslu á samdrátt í CO2 losun frá sjávarútvegi.

  • Ditte Stiler frá Norrænum orkurannsóknum mun fjalla um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á Norðurlöndum í orkuskiptum fiskiskipa og hafna.

  • Dr. Ole Ritzau Eignaard frá DTU í Danmörku mun fjalla um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á botnraski við togveiðar og það kolefni sem leysist úr læðingi á hafsbotni við veiðarnar.

  • Kaj Portin frá Wartsilla í Finnlandi mun fjalla um þróun fyrirtækisins á vélbúnaði fyrir nýja orkugjafa.

Ísland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í ár og hefur meðal annars lagt áherslu á málefni hafsins, sjálfbærni og orkuskipti í sjávarútvegi. Ráðstefnan er hluti þeirrar vinnu og er ætlað að auka norrænt samstarf á þessum sviðum.

Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu, er ókeypis og öllum opin.

Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér, skráning fer fram hér.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

12. Ábyrð neysla og framleiðsla
13. Aðgerðir í loftslagsmálum
17. Samvinna um markmiðin
14. Líf í vatni
11. Sjálfbærar borgir og samfélög
9. Nýsköpun og uppbygging
8. Góð atvinna og hagvöxtur

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum