Hoppa yfir valmynd
6. mars 2015 Forsætisráðuneytið

20. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá 

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Áframhaldandi umræða um forgangsatriði
  3. Önnur mál

Fundargerð

20. fundur – haldinn föstudaginn 6. mars 2015, kl. 9.30, í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir, Valgerður Gunnarsdóttir og Róbert Marshall sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar. Birgir Ármannsson og Valgerður Bjarnadóttir höfðu boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 19. fundar, sem haldinn var föstudaginn 27. febrúar 2015, var send nefndarmönnum með tölvupósti 5. mars. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda.

2. Áframhaldandi umræða um forgangsatriði

2.1. Umhverfisvernd

Haldið var áfram umfjöllun um umhverfisvernd, sbr. einnig umræður á 18. og 19. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög (glærur) send nefndarmönnum.

2.2. Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta

Haldið var áfram umfjöllun um þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta, sbr. einnig umræður á 17. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög (glærur) send nefndarmönnum.

3. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.30.

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum