Hoppa yfir valmynd
6. mars 2015 Forsætisráðuneytið

21. fundur stjórnarskrárnefndar

Dagskrá 

  1. Fundargerð síðasta fundar
  2. Áframhaldandi umræða um forgangsatriði
  3. Önnur mál

Fundargerð

21. fundur – haldinn föstudaginn 13. mars 2015, kl. 9.30, í fundarsal Þjóðminjasafns Íslands, Reykjavík.

Mættir voru eftirtaldir: Páll Þórhallsson, formaður, Aðalheiður Ámundadóttir, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Katrín Jakobsdóttir og Valgerður Gunnarsdóttir. Valgerður Bjarnadóttir og Róbert Marshall, sem tilnefndur hefur verið til setu í nefndinni af hálfu Bjartrar framtíðar, höfðu boðað forföll.

Þá sat fundinn Sif Guðjónsdóttir, lögfræðingur á löggjafarskrifstofu forsætisráðuneytis og ritari nefndarinnar.

Formaður setti fundinn og stýrði honum.

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 20. fundar, sem haldinn var föstudaginn 6. mars 2015, var send nefndarmönnum með tölvupósti 11. mars. Fundargerðin var samþykkt án athugasemda.

2. Áframhaldandi umræða um forgangsatriði

2.1. Auðlindir

Haldið var áfram umfjöllun um auðlindir og þjóðareign, sbr. einnig umræður á 17. fundi, og leitast við að skýra betur um hvað er sátt, hvar/hvað ber á milli og hvort/hvernig hægt sé að nálgast þar sameiginlega niðurstöðu sem nánari útfærsla verði byggð á.

Unnið verður úr umræðum fundarins og ný drög (glærur) send nefndarmönnum.                    

2.2. Þjóðaratkvæðagreiðslur á grundvelli undirskrifta

Samþykkt að taka saman minnisblað um þetta efni, sbr. efnislegar umræður á 17. og 20. fundi og vinnuáætlun á 19. fundi.

3. Önnur mál

Ekkert var rætt undir þessum lið.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.00.

SG skrifaði fundargerð.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum