Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2019 Utanríkisráðuneytið

Nemendur frá þrettán löndum við nám í Jafnréttisskólanum

Nýi nemendahópurinn í Jafnréttisskólanum. Ljósmynd: UNU-GEST - mynd

Jafnréttisskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna tók á móti nemendum frá þróunarlöndum og átakasvæðum í tólfta sinn um miðjan janúar. Þetta árið eru nemendurnir 23 talsins, 7 karlar og 16 konur, og koma frá 13 löndum: Afganistan, Bosníu & Hersegóvínu, Eþíópíu, Gana, Indlandi, Kenýa, Kosovo, Malaví, Mósambík, Nígeríu, Palestínu, Serbíu og Úganda. Nemendurnir eru sérfræðingar og háskólanemar sem starfa að jafnréttismálum í  heimalandi sínu, meðal annars í ráðuneytum, félagasamtökum og lögreglunni.

Markmið Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna er að stuðla að jafnrétti og valdeflingu kvenna með menntun, námskeiðum og rannsóknum í þróunarríkjum og á átakasvæðum. Hvert vormisseri rekur Jafnréttisskólinn 20 vikna diplómanám (30 ECTS) í alþjóðlegum jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands þar sem sérstök áhersla er á þverfaglega, fræðilega og hagnýta þekkingu. Þessa önn eru kennd 7 námskeið; 5 skyldunámskeið og 2 valnámskeið, sem öll miða að því að styrkja getu nemenda til að innleiða kynjasjónarmið í vinnu sína og rannsóknir.

Námskeiðin eru: Alþjóðleg jafnréttisfræði: Kenningar og hugtök; Kyngervi, umhverfismál og sjálfbærni; Kyngervi, kyndbundið ofbeldi og öryggismál; Kyngervi, þróunarmál og hagnýt jafnréttisfræði; Kyngervi, vinnumarkaður og fólksflutningar; Kyngervi, menntun og heilsa.

Nemendurnir vinna einnig að lokaverkefni yfir önnina sem þau munu kynna í lok annar, eða dagana 20. og 21. maí. Útskrift verður 24. maí 2019.

Frekari upplýsingar um Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna er að finna á vef skólans.

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum