Hoppa yfir valmynd
23. mars 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Mál nr. 9/2021. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 10. mars 2021
í máli nr. 9/2021:
Egilsson ehf.
gegn
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
Ríkiskaupum

Lykilorð
Rammasamningur. Örútboð. Kröfu um stöðvun innkaupaferlis hafnað.

Útdráttur
Kröfu kæranda um að örútboð um kaup húsgagna, sem fram fór á grundvelli rammasamnings, yrði stöðvað um stundarsakir, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, var hafnað.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 25. febrúar 2021 kærir Egilsson ehf. örútboð Fjölbrautaskóla Suðurnesja auðkennt „Húsgögn fyrir Fjölbrautaskóla Suðurnesja – félagsrými 21363“ sem fram fór á grundvelli rammasamnings Ríkiskaupa um húsgögn, RK 04.01. Kærandi krefst þess að hið kærða örútboð „verði stöðvað og afturkallað og nýtt útboð fari fram undir réttum formerkjum og að aðilar að hluta 2 - skólahúsgögn verði á meðal bjóðanda eins og kveðið er á um í Rammasamning 04.01 Húsgögn þegar um kaup á skólahúsgögnum er að ræða, sbr. grein 1.6.2 í Rammasamningi RK 04.01.“ Varnaraðilar krefjast þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað. Í þessum þætti málsins er tekin afstaða til kröfu kæranda um að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað um stundarsakir þar til endalega hefur verið skorið úr kæru.

Í september 2019 bauð Ríkiskaup út gerð rammasamnings RK 04.01 nr. 21016 um húsgögn. Var útboðinu skipt í þrjá hluta: 1. Almenn skrifstofuhúsgögn, 2. Skólahúsgögn og 3. Önnur húsgögn, s.s. bið-, kaffistofu- og mötuneytishúsgögn. Í útboðsgögnum kom meðal annars fram að heimilt væri að bjóða í hvern hluta fyrir sig en bjóða þyrfti í allar vörur verðkörfu þess hluta sem boðið væri í. Ef ekki væri boðið í allar vörur í verðkörfu hvers hluta teldist tilboð í þann hluta ógilt. Þá kom fram að samið yrði við allt að sex seljendur í hverjum hluta. Skyldi samningurinn gilda til tveggja ára með möguleika á framlengingu um tvisvar sinnum tvö ár. Þá kom fram að kaup umfram fimm milljónir króna með virðisaukaskatti skyldu fara fram með örútboði milli allra rammasamningshafa sem gætu efnt samninginn.

Í grein 1.6 í útboðsgögnum var að finna lýsingu á þeim almennu kröfum sem boðin húsgögn skyldu fullnægja auk nánari tilgreiningar á þeim húsgögnum sem féllu undir mismunandi hluta útboðsins. Í grein 1.6.1 kom fram að til hluta 1, „Almenn skrifstofuhúsgögn“, teldust „[s]krifborð, rafdrifin skrifborð, hliðarborð, vinnuborð, skúffuskápar, skrifborðsstólar, hljóðdempandi skilrúm, skjalaskápar, geymsluskápar, fundarborð, fundarstólar, móttökuborð og hillur.“ Í undirgreinum 1.6.1.1 – 1.6.1.13 var að finna nánari tilgreiningu á þeim húsgögnum sem töldust til þessa hluta og gerð grein fyrir lágmarkskröfum sem húsgögnin skyldu uppfylla. Meðal annars voru þar tilgreindar ýmsar tegundir skrifborðsstóla, skrifborð með rafmagnsfærslu, hliðarborð, skúffuskápar með þremur skúffum, hljóðdempandi skilrúm, fundarborð og ýmsir stólar. Í grein 1.6.2 var fjallað um þær vörur sem teldust til hluta 2, „Skólahúsgögn“. Kom fram að til þess hluta teldust „[h]úsgögn fyrir öll skólastig, frá leikskóla til háskóla, kennslustofur, biðsali, leik- og frístundaherbergi, kennslurými, nemendaskápar og önnur húsgögn sem skólar þurfa“. Þá var gerð grein fyrir tilteknum kröfum til vinnuborða, borðplatna, nemendaborða og stóla. Nánari skilgreining á þeim vörum sem teldust til þessa hluta og kröfur til þeirra var að finna í átta undirgreinum, þ.e. 1.6.2.1 – 1.6.2.8, þar sem gerð var grein fyrir ýmsum tegundum nemendaborða og nemendastóla. Í grein 1.6.3 var fjallað um hluta 3, „Önnur húsgögn (s.s. bið-, kaffistofu- og mötuneytishúsgögn)“. Fram kom að þar féllu undir „[h]úsgögn fyrir ráðstefnusali, biðstofur, kaffistofur, mötuneyti, almennings- og tómstundarými auk annarra óupptalinna húsgagna.“ Jafnframt kom fram að í úrvali bjóðenda skyldu meðal annars vera borð í ýmsum stærðum, bæði hringlaga og ferköntuð fyrir kaffistofur og mötuneyti, stólar fyrir kaffistofur og mötuneyti, sófar og hægindastólar fyrir biðsali og önnur húsgögn sem ekki hefðu verið skilgreind í öðrum flokkum útboðsins. Með sama hætti og á við um aðra hluta var gerð nánari grein fyrir þeim húsgögnum sem féllu undir þennan hluta og kröfur til þeirra í undirgreinum 1.6.3.1 til 1.6.3.11, en meðal annars var um að ræða ýmsa staflanlega stóla, felliborð, vagna og ýmsar tegundir sófa og hægindastóla. Gengið var að tilboði kæranda í hluta 2 í útboðinu. Rammasamningurinn tók gildi 1. desember 2019.

Með tölvubréfi 7. desember 2020 óskaði Fjölbrautaskóli Suðurnesja eftir tilboðum í ýmis húsgögn í nýja viðbyggingu við skólann sem myndi þjóna sem vinnu- og félagsrými nemenda og tengibygging milli eldri hluta skólans. Um var að ræða örútboð sem fram fór á grundvelli framangreinds rammasamnings og var fyrirtækjum í öllum vöruflokkum boðið að taka þátt. Sama dag var örútboðið afturkallað á þeim grundvelli að einungis hefði verið heimilt að afla tilboða frá fyrirtækjum í vöruflokki 2. Með tölvubréfi 26. janúar 2021 var tilkynnt um að hið síðara örútboð hefði einnig verið afturkallað þar sem hluti af útboðsgögnum hefði verið rangur og útboðið hefði því ekki farið fram í samræmi við lög. Fram kom að innkaupin yrðu boðin út að nýju samkvæmt auglýsingu. Kærandi óskaði skýringa á þessari ákvörðun með tölvubréfi 29. janúar 2021. Með tölvubréfi 5. febrúar 2021 var sú skýring gefin að hætt hefði verið við örútboðið eftir að það hefði verið kært til kærunefndar útboðsmála og kærunefnd hefði tekið þá ákvörðun að stöðva útboðið um stundarsakir. Við nánari skoðun hefði einnig komið í ljós að fyrir mistök hefði röng magnskrá verið gefin út sem hafi vísað ranglega til flokka og væri því í ósamræmi við örútboðsgögn. Því hafi útboðið ekki verið lögmætt og hafi verið óhjákvæmilegt að draga það til baka en stefnt væri að nýju örútboði sem allra fyrst. Nýtt örútboð var auglýst 18. febrúar 2021. Í örútboðsskilmálum var óskað eftir tilboðum í húsgögn fyrir félagsrými skólans. Óskað var eftir húsgögnum í flokki 1 og 3 í rammasamningi og var því einungis þeim fyrirtækjum sem áttu aðild að þeim flokkum rammasamningsins boðið að taka þátt. Kom fram að örútboðinu væri skipt í fjóra aðskilda hluta og sjálfstæða hluta. Var hlutum þessum lýst á eftirfarandi hátt í greinum 1.3.1 – 1.3.4: „Hluti A – Næðisrými, tveggja sæta sófar með háu baki og sófa-/fundarborð með miðjusúlu á platta.“ „Hluti B – Vinnusvæði, 80cm hringborð og stólar.“ „Hluti C – Setustofa, lágir setusófar og lausir setukollar/hliðarborð.“ „Hluti D – Skrifstofa, fundarborð, skrifborð og stólar.“ Undir hverjum flokki var einnig að finna nánari upplýsingar um þær kröfur sem boðin húsgögn skyldu fullnægja og um umbeðið magn. Í grein 1.4.1 kom fram að velja skyldi á milli tilboða á grundvelli verðs eingöngu.

Með tölvubréfi kæranda til varnaraðila 18. febrúar 2021 var óskað skýringa á því hvers vegna kæranda hefði ekki verið boðið að taka þátt í örútboðinu. Í svari varnaraðila, sem barst degi síðar, kom fram að kaupandi hefði óskað eftir því að kaupa inn í fjórum hlutum þannig að húsgögnin féllu betur að hönnun hússins og í samræmi við heimild þess efnis í rammasamningnum. Þessir fjórir hlutar féllu undir flokka 1 og 3 í rammasamningnum.

Kærandi byggir að meginstefnu á því að þau húsgögn sem varnaraðilar hyggist kaupa falli í flokk 2 í rammasamningi en í þann flokk falli húsgögn fyrir öll skólastig, frá leikskóla til háskóla, kennslustofur, biðsali, leik- og frístundaherbergi, kennslurými, nemendaskápar og önnur húsgögn sem skólar þurfi samkvæmt grein 1.6.2 í rammasamningi. Húsgögnunum sé ætlað að þjóna nemendum í félagsrými, en það rými teljist til leik- og frístundaherbergis samkvæmt grein 1.6.2 í rammasamningi. Því beri varnaraðilum að bjóða kæranda að taka þátt í hinu kærða örútboði.

Varnaraðilar byggja á því að af ákvörðun kærunefndar útboðsmála í máli nr. 54/2020 megi draga þá ályktun að í flokk 2 falli einungis þau húsgögn sem tilgreind séu í undirgreinum 1.6.2.1 – 1.6.2.8, þ.e. einkum nánar tilteknar gerðir nemandastóla og nemendaborða. Megi því gagnálykta á þá vegu að húsgögn sem hvorki séu nemendaborð né nemendastólar falli undir aðra flokka rammasamningsins og má þá einu gilda hvort kaupandinn sé skóli. Túlka verði flokk 2 með sama hætti. Þar sem þau húsgögn sem óskað var eftir í örútboðinu falli ekki undir tæmandi talningu í undurköflum flokks 2 hafi varnaraðlum borið að bjóða þau út undir öðrum flokkum. Þau húsgögn sem hafi greinilega fallið undir undirgreinar 1.6.1.1 til 1.6.1.13 hafi verið boðin út í flokki 1 en húsgögn sem féllu hvorki í flokk 1 eða 2 boðin út í flokki 3.

Niðurstaða

Eins og mál þetta liggur fyrir nú snýr ágreiningur aðila að því í hvaða flokk þau húsgögn sem varnaraðilinn Fjölbrautaskóli Suðurnesja hyggst kaupa í hinu kærða örútboði falla og hvort kærandi hafi átt rétt á því að taka þátt í örútboðinu. Eins og að framan er rakið var rammasamningnum skipt í þrjá hluta eftir því um hvers konar húsgögn var að ræða. Það var nánari grein gerð fyrir þeim húsgögnum sem féllu undir hvern hluta fyrir sig í greinum 1.6.1 – 1.6.3 í rammasamningnum, sem og undirgreinum. Þá var sérstaklega tekið fram í grein 1.6.3 að undir hluta 3 féllu húsgögn sem ekki hefðu áður verið talin upp. Að mati kærunefndar útboðsmála er nokkur skörun á milli húsgagna í mismunandi hlutum sé litið til hinnar almennu tilgreiningar og verður að horfa til undirgreinanna við skýringu á því til hvaða hluta hin ýmsu húsgögn teljast. Eins og mál þetta liggur fyrir nú, og í ljósi ákvörðunar kærunefndar i máli nr. 54/2020 telur nefndin að miða verði við að undir hluta 2 falli að meginstefnu til þau húsgögn sem tilgreind eru í undirgreinum 1.6.2.1 – 1.6.2.8, en um er að ræða nánar tilgreind nemendaborð og nemendastóla.

Fjölbrautaskóli Suðurnesja hyggst, eins og áður greinir, kaupa húsgögn í félagsrými skólans og telur nefndin að ráða megi af lýsingu á umræddum húsgögnum í örútboðsskilmálum að um sé að ræða húsgögn sem falli ekki í flokk 2 eins og skýra verði þann flokk. Að þessu virtu og eins og málið liggur nú fyrir telur nefndin að kærandi hafi ekki leitt verulegar líkur að því að varnaraðilar hafi brotið gegn lögum við val á þátttakendum í hinu kærða örútboði, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Verður því kröfu varnaraðila um að hið kærða örútboð verði stöðvað um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru hafnað.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Egilsson ehf., um að örútboð varnaraðila, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Ríkiskaupa, auðkennt „Örútboð á húsgögnum RK 04.01“ verði stöðvað um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, er hafnað.


Reykjavík, 10. mars 2021

Ásgerður Ragnarsdóttir (sign)

Eiríkur Jónsson (sign)


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum