Hoppa yfir valmynd
22. desember 2011 Innviðaráðuneytið

Áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga á árinu 2012

Innanríkisráðherra hefur samþykkt eftirfarandi tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga  frá 14. desember síðastliðinn um áætlaðar úthlutanir framlaga á árinu 2012:

Almenn jöfnunarframlög til reksturs grunnskóla

Ráðgjafarnefndin leggur til að áætlun um heildarúthlutun almennra jöfnunarframlaga til reksturs grunnskóla nemi allt að 5.024 m.kr. á árinu 2012, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 351/2002 með síðari breytingum. Þar af eru 60 m.kr. vegna uppgjörs framlaga ársins 2010 þar sem endanlegur álagningarstofn útsvars þess árs liggur nú fyrir.

Framlög vegna sérþarfa fatlaðra nemenda

Farið hefur fram endurskoðun á áætlun um úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda árið 2012. Ráðgjafarnefndin leggur til að áætlun um úthlutun framlaga vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á árinu 2012, sbr. 4. gr. rgl. nr. 351/2002 með síðari breytingum, nemi samtals um 1.555 m.kr. Annars vegar er um að ræða áætlað framlag til Reykjavíkurborgar að fjárhæð 800 m.kr. á grundvelli samnings vegna reksturs sérskóla/sérdeilda, sem áður voru rekin af ríkinu, en hins vegar er áætlað framlag að fjárhæð um 755 m.kr. vegna sérþarfa fatlaðra nemenda á grunnskólaaldri í öðrum sveitarfélögum en Reykjavíkurborg.

Framlög vegna nýbúafræðslu

Farið hefur fram endurskoðun á áætlun um úthlutun framlaga vegna nýbúafræðslu árið 2012. Ráðgjafarnefndin  leggur til að áætlun um úthlutun framlaga vegna  nýbúafræðslu árið 2012, sbr. 5. gr. rgl. nr. 351/2002 með síðari breytingum, nemi samtals um 145 m.kr. 

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts

Farið hefur fram endurskoðun á áætlun um úthlutun framlaga vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti, sbr. reglugerð nr. 80/2001 með síðari breytingum. Ráðgjafarnefndin leggur til að áætlun um heildarúthlutun framlaganna nemi 2.847,9 m.kr. Jöfnunarsjóður greiðir sveitarfélögum framlag fyrirfram sem nemur 60% af áætluðu framlagi ársins eða um 1.708,7 m.kr. Greiðslan er innt af hendi með fimm jöfnum greiðslum mánuðina febrúar til júní. Uppgjör framlaganna greiðist með þremur jöfnum greiðslum mánuðina, júlí, ágúst og september. Áætlunin byggir á ráðstöfunarfjármagni sjóðsins á grundvelli  fjárlaga ársins 2012.

Útgjaldajöfnunarframlög

Farið hefur fram endurskoðun á ætlun um heildarúthlutun útgjaldajöfnunarframlaga sjóðsins, sbr.    13. gr. reglugerðar nr. 960/2010. Ráðgjafarnefndin leggur til að heildarúthlutun framlaganna á árinu nemi  4.700 m.kr.

Til úthlutunar nú koma  4.525 m.kr. Eftirstöðvar framlaganna að fjárhæð 175 m.kr. koma til úthlutunar í desember 2012 á grundvelli umsókna sveitarfélaga vegna íþyngjandi kostnaðar við skólaakstur úr dreifbýli.

Framlögin verða greidd til sveitarfélaga mánaðarlega, en 10 prósentum er þó haldið eftir af áætluðum framlögum til að mæta því ef ráðstöfunarfé sjóðsins verður minna eða útgjöld meiri en áætlað var. Uppgjör framlaganna fer fram í desember 2012.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum