Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2016 Heilbrigðisráðuneytið

Umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Sjö umsækjendur eru um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands sem velferðarráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í október síðastliðnum.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

  • Emil Sigurjónsson mannauðsstjóri

  • Guðjón Hauksson deildarstjóri

  • Gunnar Kristinn Þórðarson stuðningsfulltrúi

  • Svava Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir forstöðumaður

  • Valbjörn Steingrímsson sérfræðingur

  • Vivek Gopal ráðgjafi

  • Þórhallur Harðarson mannauðsstjóri

Þriggja manna nefnd sem skipuð er af heilbrigðisráðherra í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu metur hæfni umsækjenda um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana. 

Forstjóri ber ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Austurlands starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Heilbrigðisstofnun Austurlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu í heilbrigðisumdæmi Austurlands sem nær yfir sveitarfélögin Vopnafjarðarhrepp, Fljóts­dals­hérað, Fljótsdalshrepp, Borgarfjarðarhrepp, Seyðisfjarðarkaupstað, Fjarða­byggð, Breið­dals­hrepp, Djúpavogshrepp og fyrrum Skeggjastaðahrepp. Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Heilbrigðisstofnun Austurlands er með fjölmennustu vinnustöðum á Austurlandi þar sem starfa að jafnaði um 340 manns og er ársvelta stofnunarinnar um þrír milljarðar króna.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum