Hoppa yfir valmynd
4. nóvember 2016 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Nordic Matters: Norræntmenningarár í London árið 2017

Southbank Centre í London kynnir Nordic Matters þar sem norræn menning og listir verða í brennidepli allt árið 2017.

Norræn menning og listir verða í brennidepli hjá Southbank Centre í London árið 2017 á menningarhátíðinni Nordic Matters. Southbank Centre er stærsta menningarmiðstöð Bretlands og stendur við hinn líflega suðurbakka Thames árinnar í miðborg London. Boðið verður upp á fjölbreytta norræna menningardagskrá á sviðum bókmennta, tónlistar, dans, myndlistar, hönnunar, tísku, matvæla og arkitektúrs auk þess sem hægt verður að sækja fjölda fyrirlestra og málstofa.

Hátíðin opnar þann 13. janúar 2017 þar sem dagskráin verða formlega kynnt en þátttakendur munu einnig bætast við í hópinn reglulega yfir allt árið. Southbank Centre mun hefja norræna menningarárið með vetrarhátíð í desember þar sem lóðinni utan um miðstöðina verður breytt í norrænt landslag með hundruðum jólatrjáa og jólamarkaði.

Nordic Matters mun vinna með þrjú viðfangsefni: börn og ungt fólk, jafnrétti kynjanna og sjálfbærni og verða þau öll spunnin inn í lista- og menningarhátíðir miðstöðvarinnar allt árið 2017. Southbank Centre er listrænn stjórnandi og skipuleggjandi Nordic Matters með stuðningi frá Norrænu ráðherranefndinni, sendiráðum Norðurlandanna í London, mennta- og menningarmálaráðuneytum Norðurlandanna og listamiðstöðvum landanna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum