Hoppa yfir valmynd
21. september 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 73/2016 úrskurður 16. september 2016

Mál nr. 73/2016                     Aðlögun kenninafns: Pálsdóttir

                                            


Hinn 16. september 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 73/2016 en erindið barst nefndinni 30. ágúst:

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 30. ágúst 2016, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx um að taka upp kenningu til föður síns, Paul. Óskar hún að eiginnafn föðurins verði lagað að íslensku máli, Pálsdóttir.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Pálsdóttir.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum