Hoppa yfir valmynd
21. apríl 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 41/2021 Úrskurður 21. apríl 2021

Mál nr. 41/2021                     Eiginnafn:      Noah (kk.)

                                               

 

 

Hinn 21. apríl 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 41/2021, en erindið barst nefndinni 26. mars.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Í þessu máli reynir í fyrsta lagi á skilyrði eitt hér að ofan. Karlmannsnafnið Noah tekur ekki eignarfallsendingu í íslensku, það er eins í öllum föllum. Í öðru lagi reynir á skilyrði þrjú hér að ofan. Ritháttur eiginnafnsins Noah er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem samstafan oa kemur ekki fyrir í íslenskum orðum og þar sem ekki er ritað h í lok orða í íslensku. Samkvæmt venjulegum íslenskum framburði væri ritháttur nafnsins Nóa. Samkvæmt lögum um mannanöfn er því aðeins heimilt að fallast á eiginnafnið Noah ef það telst hafa unnið sér hefð í íslensku.

Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:

1.   Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

 

  1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
  2. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
  3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
  4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
  5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

 

2.  Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

 

3.  Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera 22 einstaklingar, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglnanna, eiginnafnið Noah í þjóðskrá. Sá elsti er fæddur árið 2001. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Þess vegna telst nafnið hafa unnið sér hefð í íslensku.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Noah (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum