Hoppa yfir valmynd
23. mars 2019 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fæðingar- og foreldraorlof lengt í 12 mánuði samhliða heildarendurskoðun laga

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hyggst setja af stað vinnu við heildarendurskoðun laga um fæðingar- og foreldraorlof í samráði við hagsmunaaðila. Þetta kynnti hann á ríkisstjórnarfundi fyrir helgi og sagði vel við hæfi enda verða liðin 20 ár frá gildistöku laganna árið 2020. Samhliða þessu er stefnt að því að fæðingarorlof verði lengt í 12 mánuði.

Gert er ráð fyrir því að lengingin komi til framkvæmda í tveimur áföngum á árunum 2020 og 2021. Er þ í samræmi við áherslur sem koma fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og fjármálaáætlun sem var kynnt í dag og verður rædd á Alþingi í vikunni.

Stefna stjórnvalda er að efla fæðingarorlofskerfið með því að lengja samanlagðan rétt foreldra til fæðingarorlofs. Fyrri aðgerðir stjórnvalda hafa miðað að því að hækka hámarksgreiðslur til foreldra sem nýta rétt sinn til fæðingarorlofs í því skyni að auka möguleika þeirra, ekki síst feðra, til að fullnýta rétt sinn innan kerfisins

Gert er ráð fyrir að í frumvarpinu verði kveðið á um lengingu á samanlögðum rétti foreldra til fæðingarorlofs í tólf mánuði vegna barna sem fæðast, verða ættleidd eða eru tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2021 eða síðar. Jafnframt gefst tækifæri til að gera ýmsar lagfæringar á lögunum og að bregðast við fyrirliggjandi álitum frá umboðsmanni Alþingis. Sömuleiðis öðrum athugasemdum sem hafa borist á undanförnum árum. Gert er ráð fyrir að vinnunni verði lokið árið 2020 og að unnt verði að leggja fram frumvarp á haustþingi það ár.

Í millitíðinni hyggst ráðherrann leggja fram frumvarp þar sem kveðið verður á um að samanlagður réttur foreldra til fæðingarorlofs verði 10 mánuðir vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur 1. janúar 2020 eða síðar.

Það er mjög ánægjulegt að nú sé lenging fæðingarorlofsins loksins framundan og vel við hæfi að á 20 ára afmælisári laganna fari fram heildarendurskoðun þeirra. Fæðingarorlofslöggjöfin var byltingarkennd á sínum tíma enda var Ísland fyrsta landið í heiminum til að veita feðrum og mæðrum jafnan sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs. Samhliða þessu þarf svo að fara fram umræða og samtal við sveitarfélögin um það með hvaða hætti brúað verði það bil sem oft er talað um að myndist á milli þess þegar rétti foreldra til fæðingarorlofs lýkur og þar til barni býðst dagvistun á leikskóla,“ segir Ásmundur Einar.

 

 

 

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum