Hoppa yfir valmynd
11. desember 2009 Innviðaráðuneytið

Fundur um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samband sveitarfélaga á Austurlandi boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, á Egilsstöðum mánudaginn 14. desember.

Sveitarfélög á Austurlandi
Sveitarfélög á Austurlandi

 

Fundurinn er haldinn í kjölfar þess að nýlega undirrituðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga yfirlýsingu um að skipa samstarfsnefnd til að ræða og meta sameiningarkosti sveitarfélaga í hverjum landshluta. Nefndin skal kynna sér stöðu mála í einstökum landshlutum og viðhorf sveitarstjórnarmanna og almennings til sameiningar. Að því loknu skal hún leggja fram drög um sameiningarkosti í hverjum landshluta og verði þau lögð fyrir landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2010 til umræðu og álits. Að því loknu mun ráðherra leggja fyrir Alþingi áætlun um sameiningar sveitarfélaga til ársins 2014 sem byggist á umræðum og áliti landsþingsins.

Í lok september samþykkkti aðalfundur Sambands sveitarfélaga á Austurlandi að skipa starfshóp um hugsanlega sameiningu allra sveitarfélaga á Austurlandi. Verkefnin falla því mjög vel hvort að öðru og munu hóparnir vinna sameiginlega að því markmiði að efla sveitarstjórnarstigið.

Sameiningarnefnd ráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga mun leggja áherslu á að sameining sveitarfélaga geti skapað betri forsendur fyrir frekari verkefnaflutningi frá ríki til sveitarfélaga, fyrir frekari breytingum á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga, og gert sveitarfélögum betur kleift að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra, svo sem varðandi íbúaþjónustu, stjórnsýslu, fjármál og ábyrgð.

Nefndin mun einnig meta fyrir hvert landssvæði hvaða aðrar aðgerðir gætu falið í sér frekari styrkingu viðkomandi sveitarfélaga í kjölfar sameiningar, svo sem varðandi breytta verkaskiptingu milli ríkis og viðkomandi sveitarfélaga, úrbætur á sviði samgöngu- og fjarskiptamála, nýjar leiðir í uppbyggingu stjórnsýslu og grenndarlýðræðis, úrbætur á sviði félags- fræðslu- og menningarmála, og stuðla að því að nýlegar aðgerðir og áætlanir á sviði atvinnu- og byggðamála skili sér til sveitarfélaganna.

Í sameiningarnefndinni eru: Flosi Eiríksson og Dagný Jónsdóttir sem skipuð eru af ráðherra, Soffía Lárusdóttir og Þorleifur Gunnlaugsson sem skipuð eru af Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Starfsmaður nefndarinnar verður Sigurður Tómas Björgvinsson stjórnsýsluráðgjafi og auk þess starfar Stefanía Traustadóttir, sérfræðingur í ráðuneytinu, með nefndinni.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum, mánudaginn 14. desember og hefst klukkan 16.30. Fundurinn er opinn öllu áhugafólki um eflingu sveitarstjórnarstigsins. Dagskrá fundarins er hér á eftir.

Dagskrá:

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum