Hoppa yfir valmynd
1. mars 2022 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 38/2022 Úrskurður 1. mars 2022

Mál nr. 38/2022                    Eiginnafn:     Nieljohníus (kk.)

 

 

 

Hinn 1. mars 2022 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 38/2022 en erindið barst nefndinni 7. febrúar.  Nefndina skipa Auður Björg Jónsdóttir, Finnur Ágúst Ingimundarson og Jóhannes Bjarni Sigtryggsson.

 

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

 

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

 

Eiginnafnið Nieljohníus (kk.) uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, telst ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. þrjú. Nafnið er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem samstafan hn er ekki rituð í ósamsettum orðum í íslensku og i ekki á undan e. Þess vegna er aðeins unnt að fallast á ritháttinn Nieljohníus að hann teljist hafa unnið sér hefð.

Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 1. júlí 2021 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:

 

  1. Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

     

    Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára            aldri;

     

    Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

     

    Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða             fyrr);

     

    Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða   fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið           af Íslendingi undanfarin 70 ár.

     

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

     

  3. Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

     

  4. Ritun tökunafns með þeim hætti sem gjaldgengur er í veitimálinu telst hefðbundinn. Frávik eru heimil ef um er að ræða aðlögun að almennum íslenskum ritreglum. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.

 

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber enginn nafnið Nieljohníus í þjóðskrá en það kemur fyrir í a.m.k. tveimur manntölum frá 1703–1920. Samkvæmt Íslendingabók bar maður, sem lést árið 1969 nafnið. Hefð þess hefur því ekki rofnað og nafnið samþykkt á grundvelli 1. gr. vinnureglna. 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Nieljohníus (kk.) er samþykkt.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum